Skip to main content

SAR ráðstefna – Truth Matters

SAR ráðstefna – Truth Matters - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
26. mars 2026 12:00 til 13:15
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðarsalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Háskóli Íslands er aðili að alþjóðlegu samtökunum Scholars at Risk (SAR) sem hafa það að markmiði að styðja við akademískt frelsi og vernda fræðifólk á flótta vegna skoðana sinna. Í tilefni af 25 ára afmæli SAR halda samtökin viðburði víða um heim í samstarfi við akademískar stofnanir. Yfirskriftin er Truth Matters, og tekur Háskóli Íslands þátt með ráðstefnu þar sem markmið Scholars at Risk verða rædd. Fjallað verður um stöðu háskóla og fræðifólks, og þá ógn sem víða steðjar að akademísku frelsi og sjálfstæði háskóla. Verður þessi aðför sett í samhengi við aðförina að grundvallar mannréttindum, aukna valdbeitingu hins opinbera og upplýsingaóreiðu, en þessi atriði eru gjarnan í samfloti við árásir á sjálfstæði háskóla.

Fundarstjóri: Artem Ingmar Benediktsson, doktor í menntavísindum

Dagskrá:

Opnun: Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands

Erindi

  • Hulda Þórisdóttir, prófessor við HÍ
  • Valgerður Pálmadóttir, lektor við HA
  • Hafsteinn Einarssson, dósent við HÍ

Umræður og spurningar úr sal.

Gott aðgengi. P-stæði, rampur, rafmagnsopnun og lyfta. Lágur þröskuldur við inngang. Færanleg borð og stólar, ekki halli á sal. Gluggar í suður og norður. Upphækkað svið, en frá gólfi upp á svið er sérútbúin lyfta sem rúmar flesta hjólastóla. Aðgengileg salerni á 1. og 2. hæð, ókyngreint salerni í kjallara.