Skip to main content

Opinn fræðslufundur um vatnsverndarskipulag

Opinn fræðslufundur um vatnsverndarskipulag - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
28. maí 2026 14:30 til 16:00
Hvar 

Askja

Stofa 132

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Vatns- og fráveitufélag Íslands (VAFRÍS) stendur fyrir opnum fræðslufundi um vatnsverndarskipulag í samstarfi við Háskóla Íslands fimmtudaginn 28. maí kl. 14.30 í stofu 132 í Öskju, náttúrufræðahúsi HÍ.

Öll erum við meðvituð um mikilvægi öruggs neysluvatns en hvernig eru góðar ákvarðanir um vatnsvernd undirbyggðar til að tryggja okkur heilnæm vatn í kranann? Hvers vegna skipta þessar ákvarðanir máli? Hvernig á að vega saman hagsmuni? Markmið fundarins er að skapa traustari grundvöll undir umræðu um þennan margslungna málaflokk.

Horft verður til skipulags vatnsverndarsvæða í fortíð, nútíð og framtíð, einkum á stærri skala, þ.e.a.s. á svæðisskipulags- og aðalskipulagsstigi frekar en á deiliskipulagsstigi.

Dagskrá

  • Hlöðver Stefán Þorgeirsson, formaður VAFRÍS: Opnun fundar
  • Baldur Dýrfjörð, lögfræðingur HS Veitna og stjórnarmaður í VAFRÍS: Vatnið okkar – lagalegt umhverfi vatnsnýtingar og vatnsverndar
  • Sveinn Óli Pálmarsson, framkvæmdastjóri Vatnaskila: Afmörkun verndarsvæða við heildarendurskoðun vatnsverndar á höfuðborgarsvæðinu
  • Ásdís Ólafsdóttir, svæðisskipulagsstjóri höfuðborgarsvæðisins: 
    Vatnsvernd í svæðisskipulagi
  • Árni Hjartarson, jarðfræðingur og sérfræðingur í grunnvatnsmálum: Vatnsból og vatnsvernd í fortíð og framtíð

Vatns- og fráveitufélag Íslands (VAFRÍS) stendur fyrir opnum fræðslufundi um vatnsverndarskipulag í samstarfi við Háskóla Íslands fimmtudaginn 28. maí kl. 14.30 í stofu 132 í Öskju, náttúrufræðahúsi HÍ.

Opinn fræðslufundur um vatnsverndarskipulag