Með fróðleik í fararnesti: Fjöruferð í Gróttu
![Með fróðleik í fararnesti: Fjöruferð í Gróttu - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/fjoruferd.jpg?itok=alKKdqQZ)
Hvenær
21. apríl 2024 12:00 til 14:00
Hvar
Grótta
Nánar
Mæting kl. 12 við Gróttu
Við skoðum ýmsar lífverur fjörunnar, grúskum í þanginu og leitum að kröbbum og öðrum smádýrum, greinum þörunga og fleira í skemmtilegri fjöruferð í Gróttu, þar sem er fjölbreytt dýra-, fugla- og plöntulíf.
Gísli Már Gíslason, prófessor emeritus í líffræði við HÍ og landsfrægur fjörulalli mun leiða gönguna ásamt líffræðinemum við HÍ. Gott er að mæta vel klædd, í stígvélum og með fötur eða glær ílát til að safna hinum ýmsu lífverum. Ekki verra að mæta með stækkunargler. Ekki gleyma nesti.
Hluti af verðlaunaverkefni Ferðafélags Íslands og Háskóla Íslands: Með fróðleik í fararnesti.
Mæting: Kl. 12 við Gróttu
![Með fróðleik í fararnesti: Fjöruferð í Gróttu](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/d4gkz.jpg?itok=1v1Ol7_i)