Skip to main content

Læsi og lestrarkennsla - Leiðir til árangurs

Læsi og lestrarkennsla - Leiðir til árangurs - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
17. mars 2023 15:00 til 17:00
Hvar 

Stakkahlíð / Háteigsvegur

Skriða

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Ráðstefna í tilefni af starfslokum Steinunnar Torfadóttur lektors við MVS HÍ

Rannsóknastofa um þroska, læsi og líðan efnir til málþings til heiðurs Steinunni Torfadóttur, lektor sem senn lætur af störfum. Steinunn hefur hannað og kennt fjöldann allan af námskeiðum á sviði málþroska, læsis, lestrarkennslu og stuðnings við börn með námsvanda.

Hún er einnig mikilsvirtur sérfræðingur á vettvangi og hefur haft mikil áhrif á lestrarkennslu í íslenskum grunnskólum, meðal annars með samstarfi við Menntamálastofnun um hönnun og útgáfu efnis sem víða hefur verið notað við mat og kennslu á lestri.

Dagskrá málþingsins

Kolbrún Pálsdóttir forseti Menntavísindasviðs setur málþingið

Leshraði á kostnað lesskilnings? - Freyja Birgisdóttir, Dósent við Sálfræðideild Háskóla Íslands

Lestrarnám byrjenda: Af hverju breikkandi bil? - Auður Björgvinsdóttir og Amelia Larimer, doktorsnemar við Menntavísindasvið

Spornað við breikkandi bili: Áhrif markvissrar hljóðaaðferðar og félagakennslu - Anna-Lind Pétursdóttir, Prófessor við Menntavísindasvið

Minnkandi lestraránægja grunnskólabarna: Hvers vegna og hvað er til ráða? - Kristján Ketill Stefánsson, lektor við Menntavísindasvið

Breytileiki í málþroska leikskólabarna - hvað getum við gert? - Jóhanna Thelma Einarsdóttir, Prófessor við Heilbrigðist- og Menntavísindasvið

Virkilega viðurkenndur vinnustaður  og fjöltyngi - Sigríður Ólafsdóttir, Dósent við Menntavísindasvið

Umræður

 Málþingsstjóri: Helga Sigurmundsdóttir

 Að lokinni dagskrá verður móttaka í Fjöru - Öll velkomin.

Viðburðinum verður streymt hér: https://livestream.com/hi/laesioglestrarkennsla

Viðburðurinn á Facebook: 
https://www.facebook.com/events/716034230008302