Opinn fræðslufundur um vatnsverndarskipulag

Askja
Stofa 132
Vatns- og fráveitufélag Íslands (VAFRÍS) stendur fyrir opnum fræðslufundi um vatnsverndarskipulag í samstarfi við Háskóla Íslands fimmtudaginn 28. maí kl. 14.30 í stofu 132 í Öskju, náttúrufræðahúsi HÍ.
Öll erum við meðvituð um mikilvægi öruggs neysluvatns en hvernig eru góðar ákvarðanir um vatnsvernd undirbyggðar til að tryggja okkur heilnæm vatn í kranann? Hvers vegna skipta þessar ákvarðanir máli? Hvernig á að vega saman hagsmuni? Markmið fundarins er að skapa traustari grundvöll undir umræðu um þennan margslungna málaflokk.
Horft verður til skipulags vatnsverndarsvæða í fortíð, nútíð og framtíð, einkum á stærri skala, þ.e.a.s. á svæðisskipulags- og aðalskipulagsstigi frekar en á deiliskipulagsstigi.
Dagskrá
- Hlöðver Stefán Þorgeirsson, formaður VAFRÍS: Opnun fundar
- Baldur Dýrfjörð, lögfræðingur HS Veitna og stjórnarmaður í VAFRÍS: Vatnið okkar – lagalegt umhverfi vatnsnýtingar og vatnsverndar
- Sveinn Óli Pálmarsson, framkvæmdastjóri Vatnaskila: Afmörkun verndarsvæða við heildarendurskoðun vatnsverndar á höfuðborgarsvæðinu
- Ásdís Ólafsdóttir, svæðisskipulagsstjóri höfuðborgarsvæðisins:
Vatnsvernd í svæðisskipulagi - Árni Hjartarson, jarðfræðingur og sérfræðingur í grunnvatnsmálum: Vatnsból og vatnsvernd í fortíð og framtíð
Vatns- og fráveitufélag Íslands (VAFRÍS) stendur fyrir opnum fræðslufundi um vatnsverndarskipulag í samstarfi við Háskóla Íslands fimmtudaginn 28. maí kl. 14.30 í stofu 132 í Öskju, náttúrufræðahúsi HÍ.
