Hvernig er jafnrétti foreldra á Norðurlöndum háttað?

Nýtt sérhefti NORA – Nordic Journal of Feminist and Gender Research um norrænar rannsóknir á foreldrahlutverkinu kom út í byrjun mars. Heftið ber titilinn Parenthood in the Nordic Countries: Imaginaries, Politics and Practices og var ritstýrt af Önnudísi G. Rúdólfsdóttur frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands, Sunnu Símonardóttur, lektor við Félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri, og Helenu Wahlström Henriksson frá Háskólanum í Uppsölum.Sérhefti NORA varpar ljósi á mikilvæga umræðu um stöðu foreldra í samfélögum sem oft eru lofuð sem fyrirmyndir á sviði jafnréttis. Í innganginum fjalla ritstýrurnar um þá sérstöðu sem norrænar stefnur, á borð við jafnaðarhyggju, öfluga velferðarinnviði og hugmyndir um sameiginlega ábyrgð foreldra, hafa á alþjóðavettvangi. Jafnframt benda þær á að þótt Norðurlöndin séu gjarnan talin standa fremst í jafnréttismálum móti samspil menningarlegra væntinga, kynjaðra viðmiða og ólíkra stöðu- og valdakerfa enn daglegt líf foreldra. Kalla þær eftir í greininni, gagnrýnni umræðu um þessi oft ósýnilegu átök, þar sem hugmyndir um jafnrétti, foreldrahlutverk, kyn, kynhneigð, stétt og uppruna mætast og takast á.
Sjálfbærni frekar á herðum mæðra innan heimila
Í heftinu birtist m.a. greinin “I Don’t Feel Like It’s Extra Work”: Gender, Parenting and Everyday Sustainability Labour", sem þýða mætti: „Mér finnst þetta ekki vera aukavinna“: Kyn, foreldrahlutverk og sjálfbærnivinna í daglegu lífi“, eftir Auði Magndísi Auðardóttur, dósent við Menntavísindasvið HÍ og Utsa Mukherjee, dósent í menntavísindum við Brunel-háskóla í London.
Í greininni skoða þau hvernig foreldrahlutverk og umhverfisvænn lífsstíll fléttast saman í daglegu lífi foreldra sem vilja leggja sitt af mörkum í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Byggt er á viðtölum við 27 foreldra úr 20 fjölskyldum á Íslandi og sérstaklega kannað hvort og hvernig kyn skiptir máli í þeirri vinnu sem felst í að gera fjölskyldulíf sjálfbærara. Niðurstöðurnar sýna að sjálfbærnivinna innan heimilisins fellur að mestu leyti á mæður. Sú vinna er margþætt og nær ekki aðeins til verklegra þátta heldur einnig skipulags, tilfinningalegrar vinnu og fræðslu til barna. Jafnframt kemur fram að mæður réttlæta þessa kynjuðu verkaskiptingu oft með því að líta á hana sem persónulegt val, áhugamál eða eitthvað sem þær hafi ánægju af. Greinin setur þessar niðurstöður í samhengi við nýfrjálshyggjulega loftslagsstjórnun, þar sem ábyrgð á loftslagsaðgerðum færist í auknum mæli yfir á heimili og einstaklinga, og við hugmyndir um ákafa foreldrahugsun, þar sem foreldrar bera sífellt meiri ábyrgð á að taka „réttar“ ákvarðanir fyrir framtíð barna sinna. Niðurstaðan er sú að kynjaðar hugmyndir um uppeldi og þessi einstaklingsmiðaða nálgun á loftslagsmál móti og styrki hvor aðra.
Kynjaðar væntingar sem móta daglegt líf foreldra
Fjórar fræðigreinar birtast að auki í heftinu, sem fjallar hver með sínum hætti um hvernig norræn samfélög móta foreldrahlutverk og uppeldismenningu. Greinarnar varpa ljósi á hvernig hugmyndir um móðurhlutverk, fjölskylduform og jafnrétti takast á við alþjóðlegar réttindahugmyndir, menningarlegar væntingar og raunveruleika daglegs lífs foreldra. Þar er meðal annars fjallað um hvernig togstreita getur skapast þegar ólík menningarleg viðmið mætast í málefnum barna, hvernig afar og ömmur gegna mikilvægu hlutverki í umönnun barna þrátt fyrir öfluga velferðarinnviði, hvernig sjálfbærni og vistvæn verkefni á heimilum hvíla oft á herðum mæðra og hvernig kynjaðar væntingar geta áfram verið ríkjandi í foreldrafræðslu, jafnvel þegar hún er sett fram sem „kynhlutlaus“. Í heild sinni endurspegla greinarnar bæði styrkleika norrænna fjölskyldukerfa og þá duldu spennu sem enn býr í kynjakerfinu, uppeldi og menningu.
Meginrannsóknarsvið Auðar Magndísar Auðardóttur, dósents við Menntavísindasvið HÍ, er vald og valdatengsl í samhengi við menntun og foreldrahlutverk.
Rannsóknarverkefni Önnudísar G. Rúdolfsdóttur, prófessors við Menntavísindasvið HÍ, hafa einkum snúið að menningarlegum og félagslegum birtingarmyndum kyngervis og áhrifum þeirra á reynsluheim og sjálfsskilning einstaklinga.
Nálgast má tímaritið með því að smella hér.
Nálgast má hlekk á greinina “I Don’t Feel Like It’s Extra Work”: Gender, Parenting and Everyday Sustainability Labour" hér.
