„Hið blíða skeytingarleysi heimsins.“ Nokkur innlegg um Albert Camus

Veröld - Hús Vigdísar
Auðarsal
Málþing í Auðarsal í Veröld - húsi Vigdísar þann 10. apríl kl. 15:00-17:30 þar sem fjallað verður um ólíkar hliðar á verkum Camus og þau viðbrögð sem þau hafa vakið og vekja enn.
Fáir franskir rithöfundar – lífs eða liðnir – eru jafn þekktir og Albert Camus. Skáldverk hans hafa verið gefin út ótal sinnum í Frakkland, leikin, þýdd og endurþýdd á fjölmörg tungumál. Í þessum vinsældum rís L'Étranger eða Útlendingurinn hæst og hefur gert um árabil sem truflandi skáldsaga um stöðu manns í heimi án augljósrar merkingar. Þegar faraldur gekk yfir heimsbyggðina fyrir nokkrum árum var skáldsagan Plágan svo endurlesin af gaumgæfni. Camus hefur einnig verið umdeildur, ekki síst fyrir afstöðu sína í sjálfstæðisbaráttu Alsírs, og sætt harðri gagnrýni fyrir þá mynd sem hann dró upp af samfélagi og samskiptum Frakka og Araba bæði í Útlendingnum og Plágunni. Engu að síður eru verk hans sífellt endurgerð og í hann vitnað í tíma og ótíma.
Haustið 2025 var kvikmyndin L'Étranger frumsýnd í kvikmyndahúsum í Frakklandi. Í þetta sinn fékk kvikmyndaleikstjórinn François Ozon að spreyta sig á því að færa eina af frægustu skáldsögum franskra bókmennta yfir á tjaldið. Í umfjöllun um kvikmyndina var ekki hikað við að rifja upp að árið 1967 hafði ítalska kvikmyndaleikstjóranum Luchino Visconti mistekist sama ætlunarverk, og að áform Camus sjálfs, árið 1950, með Gérard Philippe í hlutverki Meursault og í leikstjórn Jean Renoir, hefðu runnið út í sandinn. Svart-hvít endurgerðin þykir myndræn og sterk en hún vekur einnig spurningar um aðlögun verksins að frönskum áhorfendum í dag. Kvikmyndin var frumsýnd hér á landi á Frönsku kvikmyndahátíðinni í janúar sl. og við það tækifæri var Útlendingurinn gefin út í endurskoðaðri íslenskri þýðingu.
Í tilefni þessarar nýju kvikmyndar var ákveðið að efna til málþings í Veröld - húsi Vigdísar þann 10. apríl þar sem fjallað verður um ólíkar hliðar á verkum Camus og þau viðbrögð sem þau hafa vakið og vekja enn. Þátttakendur eru Alexandre Labruffe, Ásdís R. Magnúsdóttir, Giti Chandra, Guðrún Kristinsdóttir, Haraldur Jónsson, Irma Erlingsdóttir, Rósa Elín Davíðsdóttir og Toby Wikström. Kvikmynd Ozon, L'Étranger, verður sýnd aftur í tengslum við málþingið fimmtudaginn 9. apríl.
Að málþinginu standa Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum, Sendiráð Frakklands á Íslandi og Alliance française.
Málþing í Veröld - húsi Vigdísar þann 10. apríl þar sem fjallað verður um ólíkar hliðar á verkum Camus og þau viðbrögð sem þau hafa vakið og vekja enn.
