Samræðuganga

Verkefnið miðar að því að skapa öruggt og óformlegt rými fyrir meistaranema við Háskóla Íslands sem upplifa álag tengt námi og að samtvinna einkalíf, vinnu og skóla. Í nútíma háskólasamfélagi getur aukið álag leitt til streitu, einangrunar og kulnunar, og því er mikilvægt að bjóða upp á vettvang sem styður við vellíðan og tengsl.
Verkefnið byggir á forvarnar- og valdeflingarnálgun þar sem lögð er áhersla á styrkleika þátttakenda, jafningjastuðning og virka þátttöku. Markmiðið er að draga úr einangrun, efla seiglu og sjálfsumhyggju og auka meðvitund um mörk og jafnvægi í daglegu lífi. Framkvæmdin felst í fjórum skipulögðum göngum á höfuðborgarsvæðinu, þar sem hver ganga stendur yfir í 60 mínútur. Náttúrulegt umhverfi og hreyfing eru nýtt til að skapa afslappað andrúmsloft sem styður opnari og heiðarlegri samræður.
Hver fundur samanstendur af stuttri upphafskynningu, samræðum í göngu og lokahring þar sem þátttakendur endurspegla upplifun sína. Unnið er með fjögur meginþemu: skilning á álagi, mörk og jafnvægi, seiglu og styrkleika, og sjálfsumhyggju ásamt framtíðarsýn. Verkefnið styðst við fræðilegan grunn sem tengist seiglu, streitustjórnun og mikilvægi félagslegra tengsla. Ávinningurinn felst meðal annars í auknum félagslegum tengslum, minni einangrun, bættri sjálfsumhyggju og aukinni meðvitund um eigin bjargráð
13. apríl kl. 13 – Öskjuhlíð (hittast hjá Perlunni)
14. apríl kl. 13 – Elliðaárdalur (hittast hjá Hinu Húsinu)
22. apríl kl. 13 – Gengið frá Háskóla og út að Ægissíðu (hittast í Háskólatorgi)
24. april kl. 13 – Hljómskálagarðurinn (hittast í Háskólatorgi)
