Skip to main content

Sprettur - lærdómsfélag

Sprettur - lærdómsfélag

Sprettur er nýsköpunarverkefni á sviði menntunar sem miðar að inngildingu og gagnkvæmri aðlögun innflytjenda að háskólanámi. Verkefnið er starfrækt innan kennslusviðs Háskóla Íslands.  

Sprettur stefnir að því að auka þátttöku innflytjenda í háskólanámi sem ein besta leiðin til að læra að lifa saman sem fjölmenningarlegt samfélag. 

Gildi 

Gildi Spretts eru inngilding, jöfn tækifæri til menntunar, gagnkvæm aðlögun, tengslamyndun innan háskólasamfélagsins, virk borgaravitund, félagslegt réttlæti, fjölmenningarleg viska, vistfræðileg hugsun, jarðarborgaravitund og hugarfar fróðleiksfýsnis.

Fyrir hverja?

Núverandi og verðandi háskólanemendur með erlendan bakgrunn eru hvattir til að taka þátt í Spretti til að fá aukinn stuðning í námi og félagslífi. 

Þrír hópar innflytjenda sem geta haft gagn af Spretti: 

  • Núverandi háskólanemar með erlendan bakgrunn sem vilja taka þátt í námssamfélagi, mynda tengsl, nýta lærdóms- og mentoratækifæri og fá stuðning við að fóta sig í háskólalífinu.
  • Nemendur á síðasta ári í framhaldsskóla sem eru áhugasamir um að hefja nám í háskóla og vilja aðstoð við námið og aðlögun að háskólaumhverfinu.
  • Fullorðnir innflytjendur með mismunandi menntunarbakgrunn sem vilja halda áfram í sínu fagi eða byrja á nýju og ná betri tökum á íslensku.

Hvað gera þátttakendur í Spretti? 

Þátttakendur í Spretti mæta á náms- og mentorastundir, vinnustofur, fjölbreyttar málstofur og fjölmenningarlega viðburði. 

Þátttaka er valfrjáls og þátttakendum að kostnaðarlausu, en nemendur eru hvattir til taka virkan þátt og nýta tækifærið vel. 

Hvað er í boði fyrir mig? 

  • Náms- og félagslegur stuðningur 
  • Stuðningur frá mentorum og tengslanet 
  • Persónuleg þróun 
  • Valdefling og inngilding 

Hvernig tek ég þátt? 

Sækja um Sprett hér.

Hafðu samband

Verkefnisstjóri býður upp á fjölbreyttar kynningar á Spretti. Kynningarnar geta verið fyrir bæði einstaklinga, fjölskyldur, nemendahópa og starfsmannahópa.

Hægt er að hafa kynningarnar rafrænar eða staðsettar í framhaldsskólum, stofnunum eða Háskóla Íslands.

Juan Camilo Roman Estrada
FJölmenningarfulltrúi og verkefnisstjóri Spretts
Netfang: juancamilo@hi.is    
Sími: 525 5405