
Inntökupróf 2026
(15. júní 2026)
Inntökupróf Læknadeildar og Tannlæknadeildar Háskóla Íslands var haldið fimmtudaginn 11. og föstudaginn 12. júní 2026.
Gert er ráð fyrir að það taki allt að einn mánuð að fara yfir úrlausnir. Svarbréf verða send í tölvupósti til allra próftaka þegar niðurstöður liggja fyrir.
-
Boð um nám samþykkt eða hafnað fyrir kl. 18 mánudaginn 13. júlí
Þeir próftakar sem öðlast rétt til náms þurfa að staðfesta í tölvupósti hvort þeir ætli að nýta þann rétt eða ekki, læknisfræði: tjonah@hi.is, sjúkraþjálfunarfræði: atli@hi.is og tannlæknisfræði: srv2@hi.is. ATH. Taka þarf fram nafn og kennitölu.
-
Greiðslufrestur skrásetningargjalds rennur út 20. júlí
Fljótlega eftir að svarbréf hafa verið send út mun möguleiki til greiðslu á skrásetningargjaldinu, kr. 100.000,- birtast inn í samskiptagáttinni undir flipanum "Yfirlit umsókna".
Mánudagurinn 10. ágúst - Kennsla hefst í læknisfræði (ath. skyldumæting fyrstu vikuna)
Mánudagurinn 17. ágúst - Kennsla hefst í sjúkraþjálfunarfræði og tannlæknisfræði
-
Frestur til að sækja um annað nám rennur út 20. júlí
Eftir að niðurstöður hafa verið birtar munu þeir próftakar sem ekki öðlast rétt til náms í Læknadeild eða Tannlæknadeild, eða afþakka hann, eiga þess kost að sækja um í annað nám gegn greiðslu skrásetningargjalds skv. reglum Háskóla Íslands.
Þessi upplýsingasíða verður næst uppfærð þegar niðurstöður liggja fyrir
Vinsamlegast hafðu samband við skrifstofu Læknadeildar í síma 525 4899 eða á netfang medicine@hi.is hafir þú fyrirspurnir eða athugasemdir.