
Hvað er að vera mentor í Spretti?
Mentorar eru háskólanemar sem vilja láta gott af sér leiða. Markmið hlutverksins er að vera menningarbrúarsmiður og leiðbeinandi í lærdómsferli annarra nemenda í verkefninu Spretti. Mentorar sinna því mikilvæga hlutverki að styðja og hvetja nemendur í námi og félagslífi. Hlutverk þeirra er að skapa uppbyggjandi mentorasambönd við aðra, taka þátt í skemmtilegri virkni, heimavinnuhópum og sameiginlegum viðburðum með öllum hópnum. Mentorhlutverkið snýst um tengslamyndun og í þátttöku felst því skuldbinding gagnvart þátttakendum Spretts.
Við erum að leita að háskólanemum sem eru eldri en 18 ára sem geta skuldbundið sig til að taka þátt yfir eitt háskólaár. Við hvetjum nemendur á öllum námsbrautum og af öllum kynjum til að sækja um!
Hverju taka mentorar þátt í?
-
Lærdómsríkum málstofum í námskeiðinu Mentor í Spretti GKY001M.
-
Hálfsmánaðarlegri samveru með þátttakendum Spretts.
-
Hálfsmánaðarlegum heimavinnuhópum.
-
Sameiginlegum menningar- og háskólaviðburðum.
Hvað fá mentorar?
-
5 eininga námskeið um mentorhlutverkið þar sem meðal annars er fjallað um málefni innflytjenda, leiðtogafærni, fjölmenningarfærni, hnattræna borgaravitund, og fleira.
-
Skírteinisviðauka/Diploma supplement.
-
Persónulegan stuðning og tækifæri til að blómstra og prófa fjölbreyttar aðferðir til að styðja aðra.
Hvernig verð ég mentor í Spretti?
Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í Spretti, fylltu út þetta eyðublað og verkefnisstjóri Spretts mun hafa samband við þig.
Hafðu samband
Juan Camilo Roman Estrada
Fjölmenningarfulltrúi og verkefnisstjóri Spretts
Tölvupóstur: juancamilo@hi.is
Sími: 525-5405
