Skip to main content

Skiptinám og aðrir möguleikar erlendis

Fulltrúar frá Alþjóðasviði kynna möguleika á skiptinámi og öðrum spennandi tækifærum sem standa nemendum Háskóla Íslands til boða. 

Háskóli Íslands er í samstarfi við yfir 400 háskóla víða um heim og árlega nýta sér fjölmargir að taka hluta af náminu erlendis og sækja sér þannig sérhæfingu í námi og dýrmæta reynslu.

Kostir þess að fara í skiptinám:

» fjölbreyttara námsframboð
» tækifæri til sérhæfingar
» möguleiki á að fá einingar metnar
» einfaldara og ódýrara en nám á eigin vegum
» möguleikar á ferða- og dvalarstyrkjum
» niðurfelld skólagjöld við gestaskóla
» tækifæri til að kynnast tungumáli og menningu annarra landa
» alþjóðlegt tengslanet
» dýrmæt reynsla sem nýtist í frekara námi eða á vinnumarkaði

Kynningin er haldin í tengslum við Alþjóðadaga Háskóla Íslands dagana 6.-8. nóvember.