Kynningarfundur fyrir nýnema á Hugvísindasviði

Aðalbygging
Hátíðasalur
Hugvísindasvið Háskóla Íslands býður nýnemum á kynningarfund í hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands, föstudaginn 15. ágúst kl. 13:00-14:00.
Að honum loknum verða kynningarfundir í Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði, Guðfræði- og trúarbragðafræðideild, Íslensku- og menningardeild og Mála- og menningardeild. Þar verður greint frá námstilhögun og veittar nánari upplýsingar um nám og félagsstarf í viðkomandi deildum. Staðsetning þessara funda verður kynnt þegar nær dregur.
Kennsla hefst mánudaginn 18. ágúst. Nýnemadagar Háskóla Íslands hefjast 1. september.
Á nýnemavef Háskóla Íslands, vef Stúdentaráðs og á vef Hugvísindasviðs eru gagnlegar upplýsingar fyrir nýnema um námið og skólann, þar á meðal stundaskrár. Eins er hægt að fá innsýn í starfið á facebooksíðum skólans og sviðsins og á Instagram síðum sviðs og skóla.
Ef einhverjar spurningar vakna um námið er hægt að hafa samband við starfsfólk á skrifstofu í síma 525 4400, senda okkur tölvupóst á netfangið hug@hi.is eða koma við á skrifstofu sviðsins í Aðalbyggingu (3. hæð); hún er opin kl. 10-12 og 13-15 virka daga.
Hugvísindasvið Háskóla Íslands býður nýnemum á kynningarfund í hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands, föstudaginn 15. ágúst kl. 13:00-14:00.
