Skip to main content

Kynningafyrirlestur prófessors - Kolbrún Þ. Pálsdóttir

Kynningafyrirlestur prófessors - Kolbrún Þ. Pálsdóttir  - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
9. júní 2026 16:00 til 17:00
Hvar 

Saga

S-114

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Kolbrún Þ.Pálsdóttir hlaut árið 2025 framgang í stöðu prófessors við deild heilsueflingar, íþrótta og tómstunda á Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Hún hefur gegnt embætti forseta Menntavísindasviðs frá júlí 2018 og lætur af því embætti í lok júní næstkomandi. 

Í erindinu, Að gera hið óformlega sýnilegt: Samspil fags og fræða ígrundar Kolbrún reynslu sína af samspili fags og fræða á vettvangi menntavísinda. 

Kolbrún lauk BA-prófi í heimspeki árið 1997, MA-gráðu í menntunarfræðum árið 2001 og doktorsprófi í menntunarfræðum frá Háskóla Íslands árið 2012. Hún var ráðin lektor í tómstunda- og félagsmálafræði við Menntavísindasvið árið 2012 eftir að hafa gegnt stöðu aðjúnkts frá árinu 2010, og varð dósent árið 2017. 

Rannsóknarsvið hennar eru meðal annars fagþróun frístundaheimila, formleg og óformleg menntun, menntastefna, fagmennska og samstarf í skóla- og frístundastarfi. Hún hefur birt fjölda fræðigreina og bókarkafla um þau viðfangsefni og jafnframt verið stjórnvöldum og sveitarfélögum til ráðgjafar um menntamál. 

Athöfninni stýrir Ólafur Páll Jónsson prófessor. 

Boðið verður upp á léttar veitingar í Súlnasal á 2. hæð Sögu að dagskrá lokinni.