Skip to main content

Bókmenntir Venesúela og kynning á Mamma Mjöll og minningar hennar

Bókmenntir Venesúela og kynning á Mamma Mjöll og minningar hennar - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
27. maí 2026 16:30 til 18:00
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

Vigdísarstofa

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Karíba útgáfa og Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum efnir til fyrirlesturs um bókmenntir Venesúela og kynningar á bókinni Mamma Mjöll og minningar hennar eftir venesúelska rithöfundinn Teresu de la Parra. 

Haldið í Vigdísarstofu í Veröld, miðvikudaginn 27. maí kl. 16:30. Verið öll velkomin. Léttar veitingar í boði.

Luis Miguel Isava, gestaprófessor við Freie Universitat Berlin, höfundur formála bókarinnar og ljóðskáld, fjallar um venesúelskar bókmenntir og Kristín Guðrún Jónsdóttir, prófessor í spænsku við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands og þýðandi bókarinnar kynnir verkið og segir frá vandamálum sem upp komu við þýðinguna. Rithöfundurinn og útgefandinn Helen Hafgnýr Cova flytur lokaorð. 