Skip to main content

Barnavernd – fyrr og nú

Barnavernd – fyrr og nú - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
6. maí 2026 12:00 til 13:30
Hvar 

Oddi

Stofa 101

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Markmið málþingsins er að skapa vettvang fyrir faglega og gagnrýna umræðu um fyrirliggjandi frumvarp til nýrra barnaverndarlaga á Íslandi. Lögð er áhersla á að rýna í frumvarpið út frá sjónarhorni félagsráðgjafar og lögfræði, með það að markmiði að efla skilning á áhrifum þess á réttindi barna, innleiðingu og faglega framkvæmd barnaverndar og samstarf ólíkra kerfa. Málþingið er samstarfsverkefni Félagsráðgjafadeildar og Lagadeildar Háskóla Íslands, sem undirstrikar mikilvægi þverfaglegrar nálgunar við mótun og framkvæmd barnaverndarlöggjafar.

Erindi flytja:
Anna Tryggvadóttir, skrifstofustjóri í Mennta- og barnamálaráðuneytinu, sem mun flytja framsöguerindi á málþinginu um frumvarp til nýrra barnaverndarlaga, markmið þess og helstu nýmæli.

Þyrí Halla Steingrímsdóttir, skrifstofustjóri og starfandi framkvæmdastjóri hjá Barnaverndar Reykjavíkur, mun reyfa sjónarmið barnaverndar út frá áskorunum og tækifærum sem frumvarpið kann að fela í sér fyrir barnaverndarþjónustu sveitarfélaga.

Steinunn Bergmann, formaður Félagsráðgjafafélags Íslands, mun fjalla um frumvarpið út frá faglegu sjónarhorni félagsráðgjafa og ræða áhrif lagabreytinganna á starfsskilyrði og faglegt hlutverk félagsráðgjafa í barnaverndarkerfinu.

Fundarstjóri: Hrefna Friðriksdóttir, prófessor við Lagadeild Háskóla Íslands.

Hægt verður að fylgjast með málþinginu í streymi í þessari slóð.

Markmið málþingsins er að skapa vettvang fyrir faglega og gagnrýna umræðu um fyrirliggjandi frumvarp til nýrra barnaverndarlaga á Íslandi.

Barnavernd – fyrr og nú