Alþjóðasamvinna á krossgötum: Hvert stefnir Ísland?

Hvenær
11. apríl 2025 9:00 til 17:00
Hvar
Norræna húsið
Nánar
Aðgangur ókeypis
Taktu daginn frá, 11. apríl!
Árleg ráðstefna Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, utanríkisráðuneytisins og Norræna hússins í samstarfi við Félag stjórnmálafræðinga og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála verður haldin í Norræna húsinu föstudaginn 11. apríl.
Eins og síðastliðin ár bjóðum við til samtals þar sem við kryfjum alþjóðamálin og allar þær áskoranir sem við okkur blasa í alþjóðasamfélaginu í dag.Komdu og vertu með!
Við lofum fjörugum og fræðandi umræðum. Allir velkomnir! Dagskrá ráðstefnunnar verður auglýst síðar.
Taktu daginn frá! Árlega ráðstefnan "Alþjóðasamvinna á krossgötum: Hvert stefnir Ísland" fer fram í Norræna húsinu föstudaginn 11. apríl.
