Skip to main content
26. júní 2026

Rúmlega 8.700 umsóknir um nám í Háskóla Íslands 

Rúmlega 8.700 umsóknir um nám í Háskóla Íslands  - á vefsíðu Háskóla Íslands

-    Innlendum umsækjendum fjölgar um 2,4% milli ára.
-    Aukinn áhugi á hjúkrunarfræði, kennaramenntun og STEM-greinum
-    Hátt í 300 umsóknir um nám í Háskólann á Hólum sem verður aðildarskóli nýrrar háskólasamstæðu Háskóla Íslands frá 1. júlí

Háskóla Íslands bárust rúmlega 8.700 umsóknir um grunn- og framhaldsnám fyrir komandi skólaár. Umsóknum fækkar í heildina lítillega milli ára sem helgast af því að erlendir umsækjendur eru færri en í fyrra en innlendum umsækjendum fjölgar hins vegar um rúm 2 prósent. Þá bárust Háskólanum á Hólum 275 umsóknir en eins og kunnugt er tekur fyrsta íslenska háskólasamstæðan til starfa 1. júlí nk., sem Háskólinn á Hólum og Háskóli Íslands mynda saman.

Alls reyndust umsóknir um grunnnám við Háskóla Íslands 4.926 og fækkar þeim um rúmlega 170 milli ára. Af heildarfjölda umsókna um grunnnám voru 1.092 erlendar sem er 250 umsóknum færri en í fyrra.

Félagsvísindasviði skólans bárust alls 859 umsóknir um grunnnám

  • Líkt og oft áður sóttu flestir um nám í viðskiptafræði eða rúmlega 300. 
  • Nærri 160 hyggjast hefja nám í lögfræði, rúmlega 120 í hagfræði og um 110 í félagsráðgjöf.
  • Samanlagt stefna um 100 á nám í félagsfræði, mannfræði og þjóðfræði og 60 í stjórnmálafræði og blaðamennsku.

Alls bárust Heilbrigðisvísindasviði 1.263 umsóknir

  • Inni í þeim fjölda eru þau sem skráðu sig í inntökupróf í læknisfræði, sjúkraþjálfun og tannlæknisfræði. Rúmlega 410 sóttu um að þreyta prófið en ríflega 360 gerðu það á endanum.
  • Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild bárust samtals um 230 umsóknir en þar á meðal eru þau sem hyggjast hefja nám á námsleið í hjúkrunarfræði fyrir fólk með annað háskólapróf. Fjölgun umsókna um nám við deildina nemur nærri 30% milli ára.
  • Rúmlega 270 hafa sótt um nám í sálfræði og ríflega 85 hyggja á nám í tannlæknisfræði eða tannsmíði en samkeppnispróf fara fram í báðum greinum að loknu fyrsta misseri í desember.
  • Hátt í 70 hyggja á nám í lífeindafræði, nærri 50 í matvælafræði eða næringarfræði og svipaður fjöldi í nám í geislafræði og lyfjafræði.

Hugvísindasvið fékk flestar umsóknir af fræðasviðunum fimm eða 1.471

  • Líkt og áður er er nám í íslensku sem öðru máli og svokallaðri íslenskustoð langvinsælast en samanlagt eru umsóknir um það nám um 750.
  • 460 hyggja á nám í einhverjum af námsleiðum Mála- og menningardeildar en undir hana heyrir kennsla í 13 erlendum tungumálum og menningu.
  • Samanlagt nærri 70 hafa sótt um BA-nám í íslensku, almennri bókmenntafræði og almennum málvísindum, 45 stefna á nám í sagnfræði, 25 í heimspeki og liðlega 30 í guðfræði.

Menntavísindasviði bárust 705 umsóknir

  • Liðlega 250 þeirra eru umsóknir um nám tengt grunnskólakennslu. Þeim umsóknum fjölgar um 13% á milli ára, sem er fagnaðarefni því kallað hefur verið eftir fjölgun kennaramenntaðra.
  • Umsóknir um nám í leikskólakennarafræði og fagháskólanám í leikskólafræði eru tæplega 130 og ríflega 100 hyggja á nám í þroskaþjálfafræði.
  • Rúmlega 80 sækja um nám í uppeldis- og menntunarfræði og litlu færri um nám í íþrótta- og heilsufræði. Þá eru umsóknir um nám í tómstunda- og félagsmálafræði um 50 talsins.

Verkfræði- og náttúruvísindasviði bárust 628 umsóknir en undir sviðið heyra svokallaðar STEM-greinar. Vart verður fjölgunar umsókna í nær öllum deildum sviðsins.

  • Ríflega 260 hyggja á nám í einhverjum þeirra verkfræðigreina sem í boði eru við skólann.
  • Rafmagns- og tölvuverkfræði er vinsælust að þessu sinni með nærri 90 umsóknir, sem er u.þ.b. 60% fjölgun á milli ára.
  • Tæplega 100 stefna á nám í tölvunarfræði og svipaður fjöldi umsókna barst samanlagt í efnafræði, eðlisfræði og stærðfræði og tengdar greinar við Raunvísindadeild.
  • Tæplega 50 umsækjendur hyggjast hefja nám í líffræði, um 20 í lífefna- og sameindalíffræði og svipaður fjöldi í ferðamálafræði.

Háskólanum á Hólum bárust 275 umsóknir, þar af 124 frá erlendum umsækjendum. Alls voru 145 umsóknir samþykktar.

Umsóknir um framhaldsnám

Umsóknir um framhaldsnám við Háskóla Íslands voru 3.683 en með framhaldsnámi er átt við bæði meistaranám og nám á meistarastigi. Um 960 erlendar umsóknir bárust og hefur þeim fækkað um tæplega 200 milli ára. 

  • Flestar umsóknir um framhaldsnám bárust Félagsvísindasviði eða 1.238. Þar á eftir kom Menntavísindasvið með 778 og svo Heilbrigðisvísindasvið með 550 umsóknir, en þar fjölgar umsóknum um fjórðung milli ára. Munar þar miklu um aukna ásókn í framhaldsnám í hjúkrunarfræði. 
  • Rúmlega 460 umsóknir bárust í þverfræðilegt framhaldsnám. Þar af eru um 160 sem hyggja á nám í námsleiðum tengdum menntun framhaldsskólakennara, rúmlega 80 í meistaranám í umhverfis- og auðlindafræði, um 50 í iðnaðarlíftækni og svipaður fjöldi í hagnýta atferlisgreiningu.
  • Umsóknir um örnám eru rúmlega 630 en um er að ræða nám á framhaldsstigi sem lýkur ekki með prófgráðu heldur vottorði um námslok. Í mörgum tilvikum er hægt að nýta einingar úr örnámi í öðru námi. 
  • Umsóknir um doktorsnám fyrir komandi haust eru 130 en vakin er athygli á því að nemendur eru teknir inn í doktorsnám í Háskóla Íslands allt árið um kring.

Undanfarin ár hefur fjöldi erlendra umsókna um nám við Háskóla Íslands aukist gríðarlega. Til marks um það ríflega tvöfölduðust þær á fjögurra ára tímabili, fóru úr 1.178 árið 2021 í 2.578 umsóknir í fyrra. Í fyrsta sinn í langan tíma gætir hins vegar fækkunar í erlendum umsóknum en þær eru samanlagt 2.138 í grunn- og framhaldsnám í ár. Innlendum umsóknum fjölgar hins vegar um rúmlega 150 milli ára og eru rétt um 6.600. Það staðfestir áframhaldandi sterka stöðu Háskóla Íslands meðal íslenskra námsmanna.

Frestur umsækjenda til að greiða skrásetningargjald HÍ, sem er 100.000 kr., er til 4. júlí en greitt er í umsóknagátt HÍ.

Aðalbygging Háskóla Íslands.