Föstudagskaffi Mýrarinnar: ORKIS – Orka Íslands - sameinað afl orkutengdrar starfsemi

Gróska
Mýrin
Í næsta föstudagskaffi Vísindagarða Háskóla Íslands í Mýrinni í Grósku 29. maí kl. 9.30-10.30 verður teymi frá ORKIS, Orku Íslands, í heimsókn.
Orka Íslands er sameiginlegur vettvangur mótaður til að leiða orkuframtíð Íslands undir einu nafni ORKIS. Vettvangurinn og nafnið endurspeglar íslenska sérþekkingu, öflugt tengslanet í íslensku atvinnulífi og drifkraft nýsköpunar, til að umbreyta þekkingu í verðmæti og áhrif, hér heima og á alþjóðavettvangi.
ORKIS samanstendur af Orkuklasanum, GEORG rannsóknarklasa í jarðvarma og svo mun Íslensk Nýorka koma inn sem dótturfélag.
Sérfræðingar ORKIS munu deila með gestum sýn ORKIS og stefnumótunarvinnu, skoða hlutverk í innlendu og alþjóðlegu samstarfi, kanna hvernig hægt er að sameina kraftana hér á Vísindagörðum og hvað slíkt samstarf gæti fært okkur.
Heitt á könnunni og snarl í boði!