Skip to main content

Lagt af stað í skólum - leiðir til að læra lýðræði 

Lagt af stað í skólum - leiðir til að læra lýðræði  - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
1. júní 2026 15:00 til 16:30
Hvar 

Saga

S-261

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Margaret Rasfeld, þýsk baráttukona fyrir menntun og lýðræði, flytur opið erindi á Menntavísindasviði Háskóla Íslands.

Í erindinu fjallar hún um hvernig skólar geta orðið vettvangur virkrar þátttöku, ábyrgðar og lýðræðislegrar menningar þar sem börn og ungmenni fá tækifæri til að nýta hæfileika sína, láta rödd sína heyrast og taka þátt í að móta samfélagið.

Margaret byggir á áratugalangri reynslu sinni sem skólastjóri og frumkvöðull í menntamálum og ræðir hvernig hægt sé að brjóta upp hefðbundna starfshætti til að skapa skólamenningu sem einkennist af trausti, virðingu, hugrekki og sjálfbærni.

„Við lifum á umbrotatímum. Ég er sannfærð um að við þurfum að breyta viðhorfum okkar og vitund í átt til meiri vonar, bjartsýni, hugrekkis og trausts. Menntun gegnir þar lykilhlutverki.“

Viðburðurinn er opinn öllum áhugasömum.

Margaret Rasfeld, þýsk baráttukona fyrir menntun og lýðræði, flytur opið erindi á Menntavísindasviði Háskóla Íslands.

Lagt af stað í skólum - leiðir til að læra lýðræði