Bókmenntir Venesúela og kynning á Mamma Mjöll og minningar hennar

Veröld - Hús Vigdísar
Vigdísarstofa
Karíba útgáfa og Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum efnir til fyrirlesturs um bókmenntir Venesúela og kynningar á bókinni Mamma Mjöll og minningar hennar eftir venesúelska rithöfundinn Teresu de la Parra.
Haldið í Vigdísarstofu í Veröld, miðvikudaginn 27. maí kl. 16:30. Verið öll velkomin. Léttar veitingar í boði.
Luis Miguel Isava, gestaprófessor við Freie Universitat Berlin, höfundur formála bókarinnar og ljóðskáld, fjallar um venesúelskar bókmenntir og Kristín Guðrún Jónsdóttir, prófessor í spænsku við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands og þýðandi bókarinnar kynnir verkið og segir frá vandamálum sem upp komu við þýðinguna. Rithöfundurinn og útgefandinn Helen Hafgnýr Cova flytur lokaorð.