Barnavernd – fyrr og nú

Oddi
Stofa 101
Markmið málþingsins er að skapa vettvang fyrir faglega og gagnrýna umræðu um fyrirliggjandi frumvarp til nýrra barnaverndarlaga á Íslandi. Lögð er áhersla á að rýna í frumvarpið út frá sjónarhorni félagsráðgjafar og lögfræði, með það að markmiði að efla skilning á áhrifum þess á réttindi barna, innleiðingu og faglega framkvæmd barnaverndar og samstarf ólíkra kerfa. Málþingið er samstarfsverkefni Félagsráðgjafadeildar og Lagadeildar Háskóla Íslands, sem undirstrikar mikilvægi þverfaglegrar nálgunar við mótun og framkvæmd barnaverndarlöggjafar. Fundarstjóri: Hrefna Friðriksdóttir, prófessor við Lagadeild Háskóla Íslands.
Hægt verður að fylgjast með málþinginu í streymi í þessari slóð.
Hægt verður að fylgjast með málþinginu í streymi í þessari slóð.
