Skip to main content

Fundargerð háskólaráðs 9. apríl 2026

5/2026

HÁSKÓLARÁÐSFUNDUR

Ár 2026, fimmtudaginn 9. apríl var haldinn fundur í háskólaráði Háskóla Íslands sem hófst kl. 13.00.

Fundinn sátu Silja Bára R. Ómarsdóttir, Andri Már Tómasson, Arnar Þór Másson, Davíð Þorláksson (á fjarfundi), Hólmfríður Garðarsdóttir, Katrín Jakobsdóttir, Ólafur Pétur Pálsson, og Viktor Pétur Finnsson. Fundinn sat einnig Magnús Diðrik Baldursson sem ritaði fundargerð. Elísabet Siemsen, Katrín Atladóttir og Ragný Þóra Guðjohnsen boðuðu forföll.

1.    Setning fundar.
Rektor setti fundinn og greindi frá því að fundargerðir síðustu tveggja funda hefðu verið samþykktar, undirritaðar rafrænt og birtar á háskólavefnum. Þá spurði rektor hvort einhver gerði athugasemd við dagskrá fundarins og var svo ekki. Loks spurði rektor hvort einhver lýsti sig vanhæfan til að taka þátt í meðferð máls á dagskrá  og var svo ekki. Ekki voru gerðar athugasemdir við liðinn „bókfærð mál“ og skoðast hann því samþykktur.

2.    Fjármál Háskóla Íslands. Staða, horfur, áætlun:

a.    Ársreikningur 2025.
Inn á fundinn kom Jenný Bára Jensdóttir, sviðsstjóri fjármálasviðs, og fór yfir ársreikning Háskóla Íslands fyrir árið 2025 sem lá fyrir fundinum. Ólafur Pétur Pálsson, formaður endurskoðunarnefndar háskólaráðs, greindi frá því að nefndin hefði farið yfir ársreikninginn og lagði fram svohljóðandi bókun: 

„Endurskoðunarnefnd fór á fundi sínum þann 27. mars 2026 yfir drög að ársreikningi Háskóla Íslands ásamt skýrslu rektors vegna ársins 2025. Á þeim fundi fékk nefndin einnig fullnægjandi útskýringar og staðfestingu á þeim níu atriðum sem fram koma nú í áritun rektors en voru áður í staðfestingarbréfi stjórnanda ríkisaðila með ársreikningi. Það er því tillaga endurskoðunar-nefndar að háskólaráð samþykki ársreikninginn og feli rektor frágang hans.“

Málið var rætt og svaraði Jenný Bára spurningum fulltrúa í háskólaráði. 

– Ársreikningur Háskóla Íslands fyrir árið 2025 samþykktur einróma og rektor falið að ganga frá honum.

Jenný Bára vék af fundi.

3.    Málefni Fasteigna Háskóla Íslands ehf.
Fyrir fundinum lá bréf Fasteigna Háskóla Íslands til fjármála- og efnahagsráðherra varðandi viðbyggingu við nýtt hús Heilbrigðisvísindasviðs á Landspítalareit, minnisblað um sama mál, dags. 9. desember 2025, og bréf formanns stjórnar félagsins til formanns stjórnar og forstjóra Happdrættis Háskóla Íslands, dags. 23. mars 2026. Katrín Jakobsdóttir, fulltrúi í háskólaráði og formaður stjórnar Fasteigna Háskóla Íslands ehf., greindi frá stöðu mála varðandi fjármögnun og framgang nýbyggingarinnar og var málið rætt ítarlega.

Kaffihlé.

4.    Djúptæknisetur, sbr. síðasta fund.
Inn á fundinn komu Sigurður Magnús Garðarsson, formaður stjórnar Vísindagarða Háskóla Íslands ehf., Þórey Einarsdóttir, framkvæmdastjóri félagsins, og Hrólfur Jónsson, formaður byggingarnefndar Djúptækniseturs. Héldu þau áfram kynningu sinni frá síðasta fundi ráðsins á áformum um byggingu og rekstur Djúptækniseturs á lóð Vísindagarða Háskóla Íslands ehf. Málið var rætt ítarlega og svöruðu þau Sigurður Magnús, Hrólfur og Þórey spurningum fulltrúa í háskólaráði varðandi verkefnið.

Sigurður Magnús, Þórey og Hrólfur viku af fundi.

– Samþykkt að fela rektor að óska eftir því að Vísindagarðar ehf. fái utanaðkomandi sérfræðing til að fara yfir áform um byggingu Djúptækniseturs og vinna minnisblað um málið fyrir háskólaráð. Æskilegt er að minnisblaðið liggi fyrir í tæka tíð fyrir næsta ráðsins 7. maí nk.

5.    Skipun nefndar um störf háskólaráðs, sbr. 10. gr. starfsreglna ráðsins.
Rektor gerði grein fyrir málinu. Í 10. gr. starfsreglna háskólaráðs segir að fyrir lok hvers starfsárs skuli ráðið taka saman greinargerð um störf sín á undangengnu starfsári og leggja mat á árangur og gera eftir atvikum tillögu til úrbóta. Háskólaráð skipar úr sínum röðum fjögurra manna nefnd sem annast matið og ritar greinargerðina. Í nefndinni er einn fulltrúi hvers hóps sem myndar háskólaráð, þ.e. einn fulltrúi háskólasamfélagsins, einn tilnefndur af ráðherra mennta- og menningarmálaráðherra, einn valinn af háskólaráði og einn fulltrúi stúdenta. Varaforseti háskólaráðs er formaður nefndarinnar og situr hann jafnframt fyrir þann hóp sem hann er fulltrúi fyrir í ráðinu. Rektor bar upp tillögu um að nefndin verði að þessu sinni skipuð þeim Ólafi Pétri Pálssyni, varaforseta háskólaráðs og fulltrúa háskólasamfélagsins, Davíð Þorlákssyni, fulltrúa tilnefndum af ráðherra háskólamála, Katrínu Jakobsdóttur, fulltrúa völdum af háskólaráði, og Viktori Pétri Finnssyni, fulltrúa nemenda. Nefndin mun leggja fram greinargerð sína á fundi háskólaráðs í júní nk.

– Samþykkt einróma.

6.    Bókfærð mál.
a.    Frá kennslusviði: Tillaga að breytingu á 3., 4., 12. og 15. gr. reglna nr. 244/2014 um gjaldskrá Háskóla Íslands vegna þjónustu við nemendur o.fl., og innheimtu og ráðstöfun skrásetningargjalds.

– Samþykkt.

b.    Frá kennslusviði: Tillaga að breytingu á 7. gr. reglna nr. 153/2010 um takmörkun á inntöku nemenda í tilteknar námsgreinar við Háskóla Íslands vegna samræmingar inntökuferla í meistaranámi í hagnýtri sálfræði. 

– Samþykkt.

c.    Frá Menntavísindasviði: Tillaga að breytingu á reglum fyrir Keili – Háskólabrú Háskóla Íslands nr. 254/2026. 

– Samþykkt.

d.    Stjórn Keilis - Háskólabrúar HÍ. 

– Samþykkt. Stjórnina skipa Anna Helga Jónsdóttir, prófessor við Raunvísindadeild, formaður, Kristín Björnsdóttir, prófessor á Menntavísindasviði, og Hróbjartur Árnason, lektor á Menntavísindasviði.

e.    Frá skrifstofu rektors: Tillaga um breytingu á verklagsreglum um akademísk gestastörf við Háskóla Íslands.

– Samþykkt.

f.    Skipan ráðgefandi nefndar Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands.

– Samþykkt. Skipan nefndarinnar verði framlengd til áramóta 2026-2027. Í nefndinni eru: Guðmundur Hálfdánarson, prófessor emeritus við Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði, formaður, Snæbjörn Pálsson, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild, Halldór Pálmar Halldórsson, forstöðumaður Rannsóknaseturs HÍ á Suðurnesjum, Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála, og Kristín Ágústsdóttir, forstöðumaður Náttúrustofu Austurlands.

g.    Rannsóknagagnastefna Háskóla Íslands. 

– Samþykkt.

7.    Mál til fróðleiks.
a.    Ágúst Einarsson hlaut heiðursdoktorsnafnbót við Viðskiptafræðideild.
b.    Fréttabréf Háskólavina, dags. 26. mars 2026.
c.    Auglýst eftir fulltrúum háskólasamfélagsins í háskólaráð 2026-2028.
d.    Drög að dagskrá háskólaþings 29. apríl 2026.

Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 15.10.