Skip to main content
11. mars 2026

Ágúst Einarsson hlýtur heiðursdoktorsnafnbót við Viðskiptafræðideild

Ágúst Einarsson hlýtur heiðursdoktorsnafnbót við Viðskiptafræðideild - á vefsíðu Háskóla Íslands

Dr. Ágúst Einarsson hefur verið sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands fyrir framúrskarandi framlag sitt til viðskiptafræða, rannsókna og samfélagsumræðu á Íslandi. Ágúst veitti viðurkenningunni viðtöku að viðstöddu fjölmenni í Hátíðasal HÍ þriðjudaginn 10. mars.

Ágúst Einarsson lauk prófi í rekstrarhagfræði frá Háskólanum í Hamborg, stundaði framhaldsnám í hagfræði við háskólana í Kiel og Hamborg og lauk doktorsprófi frá Háskólanum í Hamborg árið 1978.

Ágúst starfaði um árabil sem framkvæmdastjóri í sjávarútvegi og síðar sem prófessor í rekstrarhagfræði við Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands. Hann gegndi einnig starfi rektors og prófessors við Háskólann á Bifröst. Rannsóknir hans og kennsla hafa einkum beinst að rekstrarhagfræði, menningarhagfræði, sjávarútvegi og skapandi greinum.

Ágúst hefur ritað yfir þrjátíu bækur á íslensku og ensku og lagt sérstaka áherslu á að efla íslenskt fræðamál á sínu sviði. Hann er talinn frumkvöðull rannsókna á hagrænum áhrifum menningar og skapandi greina hér á landi og hefur fyrir það hlotið viðurkenningar, meðal annars hvatningarverðlaun Samtóns.

Innan Háskóla Íslands gegndi Ágúst fjölmörgum trúnaðarstörfum. Hann var meðal annars skorarformaður og deildarforseti, sat í háskólaráði og var stjórnarformaður Viðskiptafræðistofnunar.

Þar að auki hefur Ágúst gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum í íslensku samfélagi. Hann var alþingismaður og sat meðal annars í samstarfsnefnd Alþingis og þýska þjóðþingsins, var fulltrúi Íslands á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna og átti sæti í þingmannanefnd EFTA/EES. Hann sat einnig í fjölmörgum nefndum og stjórnum á vegum hins opinbera og atvinnulífs, meðal annars sem formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands, formaður Samninganefndar ríkisins og formaður Framtakssjóðs Íslands, auk setu í stjórnum Landsvirkjunar og Borgarleikhússins. 

Á vettvangi atvinnulífs og sjávarútvegs sat hann jafnframt í stjórnum eða ráðum fjölmargra fyrirtækja og samtaka, þar á meðal Hraðfrystistöðvarinnar í Reykjavík, Granda, Síldar- og fiskimjölsverksmiðjunnar, skipafélagsins Jökla, lífeyrissjóðsins Skjaldar, Íslenska úthafsveiðifélagsins, Aflvaka, Vestfirsks skelfisks, Samlags skreiðarframleiðenda, Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna og Stofnfisks, auk þess sem hann sat á Fiskiþingi og í stjórnum Fiskifélags Íslands, Samtaka fiskvinnslustöðva og Vinnuveitendasambands Íslands.

„Ágúst hefur með rannsóknum sínum, kennslu og þátttöku í opinberri umræðu verið mikilvægur tengiliður fræðasamfélags og atvinnulífs og lagt fram veigamikið framlag til viðskiptafræðinnar. Af þessum sökum telur Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands sér það sæmdarauka að heiðra Ágúst Einarsson með nafnbótinni doctor mercatoriae honoris causa,“ sagði Ásta Dís Óladóttir, prófessor við Viðskiptafræðideild, þegar hún kynnti rökstuðning deildarinnar vegna heiðursdoktorsnafnbótarinnar.

Ávörp við athöfnina flutti Ágúst sjálfur, Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor HÍ, og Ásta Dís en Margrét Sigrún Sigurðardóttir, forseti Viðskiptafræðideildar, stýrði athöfninni.

Myndir Tryggva Más Gunnarssonar frá athöfninni má sjá hér að neðan.

Ágúst Einarsson er hér ásamt Silju Báru R. Ómarsdóttur, rektor HÍ, og Margréti Sigrúnu Sigurðardóttur, forseta Viðskiptafræðideildar, og Ástu Dís Óladóttur, prófessor við Viðskiptafræðideildar.