Menntabúðir: Læsi, tækni og skapandi starf í Sögu

Saga
Sögutorg á 1. hæð og Námsgagnaver á 2. hæð
Mánudaginn 20. apríl 2026 heldur Mixtúra, sköpunar- og upplýsingatækniver skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur, árlegar Menntabúðir í samstarfi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og fleiri góða samstarfsaðila.
Menntabúðir er lifandi og óformleg samkoma þar sem fólk kemur saman til að miðla hugmyndum, deila reynslu, sýna verkefni og kynnast nýjum nálgunum í námi og kennslu. Þetta er vettvangur fyrir samtal, innblástur og tengingar. Gestir geta tekið þátt með margvíslegum hætti, hvort sem er með kynningu eða einfaldlega með því að rölta á milli, skoða og eiga samtöl.
Dagskráin er enn hin glæsilegasta, með smávægilegum breytingum, en við vonumst til að sjá ykkur flest!
Bendum leikskólafólki og öllu áhugafólki um leikskólamál sérstaklega á málþingið Bara pláss? Fagmennska og gæði í leikskólastarfi sem hefst í næstu byggingu kl. 15. Því er hægt að byrja á menntabúðum í Sögu kl. 14 og rölta yfir á málþingið í Eddu.
Hér má sjá stutt myndband frá menntabúðum vorið 2024
Hvetjum öll áhugasöm að melda sig á nýja viðburðinn hér á Facebook og fylgjast með aðdragandanum: Viðburðurinn á Facebook
Hlökkum til menntabúða!
Mixtúra, Menntavísindasvið Háskóla Íslands og fjölmargir góðir samstarfsaðilar
Mánudaginn 20. apríl 2026 heldur Mixtúra árlegar Menntabúðir í samstarfi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og fleiri samstarfsaðila Menntabúðir er lifandi og óformleg samkoma þar sem fólk deilir hugmyndum, sýnir verkefni og kynnist nýjum nálgunum í námi og kennslu. Þetta er vettvangur fyrir samtal, innblástur og tengingar þar sem gestir geta tekið þátt á sinn hátt.
