Skip to main content

Bara pláss? Fagmennska og gæði í leikskólastarfi

Bara pláss? Fagmennska og gæði í leikskólastarfi  - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
20. apríl 2026 15:00 til 16:30
Hvar 

Edda

E-103

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Málþingið, Bara pláss? Fagmennska og gæði í leikskólastarfi, fer fram mánudaginn 20. apríl í E-103 í Eddu, kl. 15:00-16:30. Málþingið verður einnig í streymi.

Málþingið er hluti af fyrirlestraröð Menntavísindasviðs HÍ, Efst á baugi og unnin í samstarfi við námsbraut í leikskólakennarafræði HÍ og Kennarasamband Íslands. 

Hvernig tryggjum við fagmennsku og gæði í leikskólastarfi? Leikskólinn er fyrsta skólastigið og byggir á fagmennsku, þekkingu og skýrum gildum um réttindi barna, leik og vellíðan. Á sama tíma hefur umræða í samfélaginu í auknum mæli snúist um aðgengi, biðlista og rekstrarlegar áskoranir. 

Dagskrá: 

15:00 - Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs - Ávarp 

15:10 – Anna Magnea Hreinsdóttir, lektor við Menntavísindasvið - Stefnumótun og styrkleikar leikskólastigsins 

15:25 - Sara Margrét Ólafsdóttir, dósent við Menntavísindasvið - Efst á baugi í leikskólamálum: Umræðan í samfélaginu  

15:40 – Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir, dósent við Menntavísindsvið - Framtíðarsýn: að brúa bilið milli stefnumótunar og raunveruleika 

15:55 - Pallborðsumræður 

  • Frummælendur; Anna Magnea, Ingibjörg Ósk og Sara Margrét
  • Haraldur F. Gíslason, formaður Félags leikskólakennara
  • Sigurður Sigurjónsson, formaður Félags stjórnenda leikskóla
  • Svava Björg Mörk, dósent við Menntavísindasvið 

16:25 - Jónína Hauksdóttir, varaformaður Kennarasambands Íslands - Lokaávarp   

16:30 Málþingi slitið.

Fundarstjóri er Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs.

Málþingið er opið öllum áhugasömum um menntamál, leikskólastarf og framtíð leikskólans. 

Nánari upplýsingar um fyrirlestraröð MVS, Efst á baugi

Málþingið, Bara pláss? Fagmennska og gæði í leikskólastarfi, fer fram mánudaginn 20. apríl í E-103 í Eddu, kl. 15:00-16:30. Málþingið verður einnig í streymi. Málþingið er hluti af fyrirlestraröð Menntavísindasviðs HÍ, Efst á baugi og unnin í samstarfi við námsbraut í leikskólakennarafræði HÍ og Kennarasamband Íslands.

Bara pláss? Fagmennska og gæði í leikskólastarfi