Málþing um farsæld barna
![Málþing um farsæld barna - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920_KRI_byggingar_190812_001.jpg?itok=arLHIWKs)
Stakkahlíð / Háteigsvegur
H-207
Þann 1. janúar 2022 tóku gildi ný lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, en með farsæld er vísað til aðstæðna sem skapa börnum skilyrði til að ná líkamlegum, sálrænum, vitsmunalegum, siðferðilegum og félagslegum þroska og heilsu á eigin forsendum til framtíðar.
Markmið þessa málþings er að hefja samtal meðal þeirra sem vinna að rannsóknum sem tengjast farsæld barna. Á fundinum verða nokkrar stuttar kynningar frá aðilum sem hafa verið að taka saman gögn og upplýsingar sem tengjast farsæld barna.
Við viljum velta fyrir okkur eftirfarandi spurningum:
- Hvað er átt við með farsæld barna?
- Er hægt að mæla farsæld barna?
- Hvaða gögn eru til um farsæld barna?
- Hvaða rannsóknir er verið að vinna um farsæld barna?
- Hvar er þörf fyrir frekari rannsóknir?
Dagskrá málþingsins
- Ragnheiður Hergeirsdóttir, lektor, Félagsráðgjafardeild „Stóra samhengið um farsæld barna“
- Hrafnkell Hjörleifsson, sérfræðingur, Mennta-og barnamálaráðuneytið „Að kortleggja farsæld barna og árangur farsældarlöggjafar“
- Eva Dögg Sigurðardóttir, sérfræðingur, BOFS „Gagnaöflun og rannsóknir Barna- og fjölskyldustofu“
- Guðný Eydal, prófessor, Félagsráðgjafardeild/Ásdís Arnalds, forstöðumaður Félagsvísindastofunar „Grunnrannsókn vegna innleiðingar á löggjöf um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna “
- Ragný Þóra Guðjohnsen, lektor, Menntavísindasvið „Íslenska æskulýðsrannsóknin“
- Arna Hauksdóttir, prófessor, Miðstöð í lýðheilsuvísindum, HÍ „Áföll í æsku og heilsa á fullorðins árum – niðurstöður úr Áfallasögu kvenna“
- Arnar Haraldsson, HLH ráðgjöf „Samþætting þjónustu í þágu farsældar barna, mat á fjárhagslegum og hagrænum áhrifum“
- Kolbeinn Hólmar Stefánsson, dósent, Félagsráðgjafardeild „Hvernig má nota gögn Hagstofunnar?“
- Kaffispjall. Boðið verður upp á kaffi og kleinur.
- Herdís Steingrímsdóttir, lektor Félagsráðgjafardeild „Farsældarþing, Rannsóknarnet, Næstu skref?“
Öll velkomin!
Þann 1. janúar 2022 tóku gildi ný lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, en með farsæld er vísað til aðstæðna sem skapa börnum skilyrði til að ná líkamlegum, sálrænum, vitsmunalegum, siðferðilegum og félagslegum þroska og heilsu á eigin forsendum til framtíðar. Markmið þessa málþings er að hefja samtal meðal þeirra sem vinna að rannsóknum sem tengjast farsæld barna. Á fundinum verða nokkrar stuttar kynningar frá aðilum sem hafa verið að taka saman gögn og upplýsingar sem tengjast farsæld barna.
![Málþing um farsæld barna](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/2jz6p.jpg?itok=EtY5vtu_)