Félagsráðgjöf, starfsréttindanám


Félagsráðgjöf: Starfsréttindanám
MA – 120 einingar
Í meistaranámi til starfsréttinda í félagsráðgjöf öðlast nemendur færni til þess að starfa sem félagsráðgjafar. Nemendur hljóta bæði fræðilega þekkingu og fá klíníska þjálfun í vinnuaðferðum félagsráðgjafa.
Skipulag náms
- Haust
- Félagsráðgjafahlutverkið og þróun eigin sjálfsmyndar
- Fagleg tengsl og siðfræði
- Þverfræðileg samvinna í heilbrigðisvísindum
- Samþætting fræða og fags: Starfsþjálfun I
- Geðheilsa, greiningar og birtingarmyndir geðsjúkdóma
- Hópvinna og hópmeðferð
- Vor
- Börn og unglingar - vinnuaðferðir
- Fjölskyldukenningar og meðferð
- Áföll og sorg: Kenningar og klínísk vinna
- Rannsóknaraðferðir í félagsráðgjöf
- Félagsráðgjöf háskólanema
Félagsráðgjafahlutverkið og þróun eigin sjálfsmyndar (FRG116F)
Vinnustofa fyrir MA nám til starfsréttinda. Markmið vinnustofunnar er að nemendur kynnist og leggi drög að ferli sjálfsskoðunnar sem nauðsynleg er til að sinna starfi félagsráðgjafa.
Fagleg tengsl og siðfræði (FRG105F)
Markmið námskeiðsins er að nemendur kynnist viðtalstækni og hljóti færni í að beita henni í vinnu sinni með skjólstæðingum. Nemendur æfa sig m.a. í hlutverkaleikjum og með greiningu myndbandsupptaka. Unnið er með sjálfstæð verkefni til að tengja fræðilega þekkingu hagnýtu starfi, og til að skapa vitund um viðhorf, eigið gildismat og persónuþætti. Athygli er beint að ábyrgð og umboði fagmannsins í opinberri þjónustu. Þá er fjallað um fagleg skrif sem tæki í málsmeðferð, s.s. dagála og greinargerðir. Einnig er fjallað um vinnustreitu og kulnun. Handleiðsluhugtakið er kynnt og mikilvægi handleiðslu í félagsráðgjöf.
Þverfræðileg samvinna í heilbrigðisvísindum (HVS501M)
Námskeiðið er ætlað nemendum á þriðja námsári eða síðar sem lokið hafa a.m.k. tveimur árum grunnnáms í greinum heilbrigðisvísinda. Hugmyndafræði þverfræðilegrar samvinnu verður lögð til grundvallar í námskeiðinu þar sem nemendur vinna saman að sameiginlegum markmiðum. Nemendur munu vinna saman í þverfræðilegum teymum og fá tækifæri til að æfa fagmennsku, teymisvinnu, og efla samskipti. Nemendur í hverjum hóp eru úr nokkrum heilbrigðisvísindagreinum.
Námsmat (staðið/fallið) byggist á verkefnavinnu, virkni í verkefnavinnu og prófum sem verða á rafrænu formi í kennslulotunni.
Kennslutilhögun:
Nemendum er skipt í þverfaglega námshópa í byrjun annar sem síðan skipuleggja fundartíma sínir sjálfir og skila lokaverkefnum fyrir lok október.
Samþætting fræða og fags: Starfsþjálfun I (FRG106F)
Markmið námskeiðsins er að tengja saman fræðilega þekkingu og starf félagsráðgjafa.
Að nemandi öðlist þekkingu á ákveðnu starfssviði félagsráðgjafa og geti sett þá þekkingu í þjóðfélagslegt samhengi.
Að nemandi fái tækifæri til að fylgjast með daglegum verkefnum og geti tekist á við einföld verkefni.
Að nemandi sé studdur við að glöggva sig á eigin forsendum til þess að vinna við félagsráðgjöf.
Nemendur eru að jafnaði 5 vikur (samtals 200 klukkustundir) samfellt í starfsþjálfun hjá úti á vettvangi og undir handleiðslu starfsþjálfunarkennara.
Nemendur mæta einu sinni á tímabilinu í fræðilega kennslu í Háskóla Íslands þar sem nemendur fjalla um dæmi úr eigin starfsþjálfun, greina þann vanda eða aðstæður sem þar birtast og beita aðferðum félagsráðgjafar. Kennsla fer fram í fyrirlestra- og dæmaformi.
Geðheilsa, greiningar og birtingarmyndir geðsjúkdóma (FRG108F)
Námskeiðið fjallar um skilgreiningar og flokkun geðrænna vandkvæða hjá börnum og fullorðnum, með áherslu á áhrif félagslegra, menningarlegra og líffræðilegra þátta. Kynnt eru sálfélagsleg greiningartæki félagsráðgjafa og helstu greiningarkerfi sem notuð eru í heilbrigðiskerfinu á Íslandi.
Jafnframt er fjallað um áhrif samfélagslegra hugmynda á greiningu og meðferð, þar á meðal sjúkdómsvæðingu einkenna, og hvernig samhengi, aðstæður og fagleg þjálfun greiningaraðila móta greiningarferlið.
Hópvinna og hópmeðferð (FRG129F)
Markmið námskeiðsins er að nemendur geti stýrt og skipulagt hópvinnu og hópmeðferð. Nemendur hafi tileinkað sé grunnatriði í hópvinnu og hópmeðferð og hafi hæfni til að taka þátt í sértækari þjálfun. Að nemendur geti greint mismunandi tegundir hópa og geti gert grein fyrir mismunandi aðferðum leiðbeinanda þegar ólíkum nálgunum hópvinnu og hópmeðferðar er beitt og hafi tekið virkan þátt í stuðningshópi (grúbbuvinnu), og m.a. greint veikleika og styrkleika sína.
Námskeiðið tengist Heimsmarkmiðum Sameinuðuþjóðanna nr. 1 (engin fátækt) nr. 4 (menntun fyrir alla) og nr. 10 (aukin jöfnuður).
Börn og unglingar - vinnuaðferðir (FRG210F)
Námskeið þetta fjallar um hvaða sértæku vinnuaðferðir félagsráðgjafar nota þegar unnið er með börnum/ungmönnum og fjölskyldum þeirra. Farið er yfir nýleg lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og þátttöku barna/ungmenna og aðkomu að eigin málum. Fjallað er um stigskiptingu þjónustu, stuðningsteymi og stuðningsáætlanir ásamt hlutverki tengiliða og málstjóra. Fjallað er um skilgreiningar á því á hvaða lífsskeiði bæði barnið/ungmennið og fjölskyldan eru og hvernig vinnuaðferðirnar miðast við aðstæður þeirra. Einnig er farið í hvaða þættir þurfa að liggja að baki mati á stuðningsþörf, bæði gagnvart barninu og ungmenninu sem einstaklingi og einnig fjölskyldunni sem heild. Einnig er farið í sértæka aðferðarfræði varðandi viðtöl við börn og ungmenni og gerðar verklegar æfingar í viðtalstækni í samtölum við börn og ungmenni. Sérstaklega er tekið mið af þeim sem eiga við mikla sálfélagslega erfiðleika að etja. Einnig er tekið mið af samþættingu og samvinnu við aðrar stéttir innan stofnana og milli stofnana, enda miðast starf félagsráðgjafans við að skoða aðstæður skjólstæðingsins út frá heildarsýn.
Fjölskyldukenningar og meðferð (FRG215F)
Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist þekkingu á fræðilegum grunni fjölskylduráðgjafar og meðferðar, ásamt beitingu fjölskyldunálgunar í félagsráðgjöf á hinum ýmsu meðferðar-og þjónustusviðum. Markmiðið er jafnframt að nemendur fái innsýn og þekkingu á hugtakinu fjölskylda, mismunandi fjölskyldugerðum, lífshlaupi fjölskyldunnar og hlutverkum. Einnig er markmiðið að nemendur öðlist færni í greiningu og mati fjölskyldukerfa. Enn fremur er markmið námskeiðsins að veita þekkingu á helstu kenningum á sviði fjölskyldumeðferðar í félagsráðgjöf og fræðum að baki vinnu með fjölskyldum, pörum og foreldrum. Þróun ríkjandi fjölskyldumeðferðarkenninga verður kynnt, kerfishugtakið, hefðbundnar kenningar og síðnútímakenningar (e. post modern theories) og fjallað er um hvenær hinar ólíku nálganir eiga best við. Sérstaklega verður hugað að eigin hugmyndum og hugmyndum í samfélaginu gagnvart einstaklingum út frá sérstæðum eiginleikum eins og t.d. kyni, kynhneigð, fötlun eða menningarlegum uppruna og mikilvægi þess að vera meðvitaður um áhrif þeirra á meðferðarstarf með fjölskyldum. Nemendur vinna verkefni sem gerir þeim kleyft að tengja fræðilega þekkingu við mannlífið og fá þannig þjálfun m.a. í greiningu fjölskyldukerfa. Kennsla fer fram í formi fyrirlestra, umræðna, æfinga og hópavinnu.
Áföll og sorg: Kenningar og klínísk vinna (FRG206F)
Fjallað verður um áföll, sorg og kreppukenningar. Farið verður yfir kenningar og hugtökin og útskýrð. Fjallað um viðbragðskerfi líkamans og birtingarmyndir áfalla, sorgar og lífsskeiðskreppa og áhrif sem þau hafa á einstaklinga og fjölskyldur. Það veður skoðað í samhengi við dæmi og gerðar klínískar æfingar í umræðutímum. Hugtökin verða kennt útfrá mismunandi sjónarhornum og í tengslum við fjölbreytt störf félagsráðgjafa á vettvangi þjónustu og meðferðarstarfa.
Rannsóknaraðferðir í félagsráðgjöf (FRG213F)
Markmið námskeiðsins er að undirbúa nemendur til að beita rannsóknum í framtíðarstarfi sínu í félagsráðgjöf. Fjallað er um siðfræði rannsókna og hlut vísindalegrar þekkingar í breytingastarfi með einstaklingum, hópum og samfélögum. Nemendur læra að orða rannsóknaspurningar, studdar kenningum og gera rannsóknaáætlanir. Sérstök áhersla er á undirbúning fyrir meistaraverkefni.
Áhersla er lögð á að nemendur séu búnir undir að notaVeitt er þjálfun í að leggja mat á fyrirliggjandi rannsóknir og skoða rannsóknaraðferðir á gagnrýnin hátt með dæmum úr félagsráðgjöf.
Félagsráðgjöf háskólanema (FRG242F)
Markmið námskeiðs er að tengja saman fræðilega þekkingu og starf félagsráðgjafa. Nemendur veita öðrum nemendum HÍ, og eftir atvikum fjölskyldum þeirra, stuðningsviðtöl. Einnig halda nemendur fræðsluerindi og hópastarf fyrir nemendur HÍ.
Nemendur beita viðtalstækni og skrifa dagnótur og greinargerðir. Nemendur noti gagnreynd verkfæri félagsráðgjafa, eins og matslita. Nemendur vinna fræðsluefni og kynna þjónustuna.
Námskeiðið tengist Heimsmarkmiðum Sameinuðuþjóðanna nr. 3 (heilsa og vellíðan); nr. 4 (menntun fyrir alla) og nr. 10 (aukin jöfnuður).
- Haust
- Félagsráðgjöf háskólanema
- Málstofa um MA verkefni
- MA ritgerð til starfsréttinda í félagsráðgjöf
- Vor
- Samþætting fræða og fags: Starfsþjálfun II
Félagsráðgjöf háskólanema (FRG313F)
Markmið námskeiðs er að tengja saman fræðilega þekkingu og starf félagsráðgjafa. Nemendur veita öðrum nemendum HÍ, og eftir atvikum fjölskyldum þeirra, stuðningsviðtöl. Einnig halda nemendur fræðsluerindi og hópastarf fyrir nemendur HÍ.
Nemendur beita viðtalstækni og skrifa dagnótur og greinargerðir. Nemendur noti gagnreynd verkfæri félagsráðgjafa, eins og matslita. Nemendur vinna fræðsluefni og kynna þjónustuna.
Námskeiðið tengist Heimsmarkmiðum Sameinuðuþjóðanna nr. 3 (heilsa og vellíðan); nr. 4 (menntun fyrir alla) og nr. 10 (aukin jöfnuður).
Málstofa um MA verkefni (FRG042F)
Í þessu námskeiði verður farið yfir verklag við gerð fræðiritgerða, aðferðir og kenningar. Nemendur kynna og ræða lokaverkefni sín.
MA ritgerð til starfsréttinda í félagsráðgjöf (FRG442L)
Námi til starfsréttinda í félagsráðgjöf er lokið með 30 eininga rannsóknarverkefni undir handleiðslu fastráðins kennara við Félagsráðgjafardeild og í ákveðnum tilvikum meðleiðbeinanda eða sérfræðings.
Markmið meistaraverkefnis er að veita nemanum þjálfun í að hanna, skipuleggja, þróa og framkvæma rannsóknarverkefni í félagsráðgjöf, læra að taka tillit til þeirra takmarkana sem leiða af vali á aðferðum, tækni, vísindasiðfræði og reglum um persónuvernd. Nemendur skulu með sjálfstæðum hætti og í rituðu máli geta skilgreint rannsóknarefni sitt, sett fram rannsóknarspurningar og tilgátur. Nemendur skulu kynna og verja umfjöllunarefni sitt og niðurstöður með munnlegum og skriflegum hætti.
Samþætting fræða og fags: Starfsþjálfun II (FRG401F)
Markmið námskeiðsins er að veita raunhæfa innsýn í félagsráðgjafarstarfið og kynnast af eigin raun störfum á þessu sviði.
Tryggja að nemandi hafi fengið þjálfun í að vinna að lausn bæði dæmigerðra og sértækra verkefna í félagsráðgjöf. Veita nema tækifæri til að skoða og vinna með eigin viðhorf og gildi með það markmið að efla faglega hæfni og seiglu. Skapa tækifæri til að móta eigin starfsímynd með því að samþætta persónuþætti, fræði og verkefni félagsráðgjafarstarfsins.
Starfsþjálfun hefst með fræðilegum inngangi í tvær vikur í janúar og lýkur með samantekt og málþingi í byrjun maí. Starfsþjálfun á vettvangi stendur að jafnaði í 13 vikur (samtals 520 klukkustundir). ATH. skyldumæting gildir í öllum þáttum námskeiðsins.
Umsjónarmaður starfsnáms frá HÍ mun heimsækja nema á vettvangi um mitt tímabil.
Hafðu samband
Nemenda- og kennsluþjónusta Félagsvísindasviðs er á
Þjónustutorgi í Gimli
s. 525 4500
Netfang: nemFVS@hi.is
Opið virka daga frá 09:00 - 15:00
Gimli - Sæmundargötu 10, 102 Reykjavík
Bóka viðtal við nemenda- og kennsluþjónustu Félagsvísindasviðs
Félagsráðgjafardeild á samfélagsmiðlum

Hjálplegt efni
Ertu með fleiri spurningar? Hér finnurðu svör við ýmsum þeirra og upplýsingar um ýmislegt annað sem gott er að hafa í huga þegar þú velur nám.