Stofnun rannsóknasetra HÍ
Markmið stofnunarinnar er að stuðla að rannsóknum, menntun og leiðbeiningu framhaldsnema víða um land, ásamt því að vera vettvangur samstarfsverkefna háskólans við nærumhverfi og nærsamfélög rannsóknasetranna með samstarfi við sveitarfélög, stofnanir, fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga.
Með þeim hætti leggja rannsóknasetrin af mörkum við að efla tengsl Háskóla Íslands við atvinnu- og þjóðlíf.
Fréttir
Megin verkefni
Á rannsóknasetrunum eru stundaðar fjölbreyttar rannsóknir en meðal viðfangsefna eru:
- Náttúruvísindi
- Lífríki hafsins
- Umhverfi og landnýting
- Hvalir, fiskar og fuglar
- Ferðamál
- Bókmenntir
- Sagnfræði
- Þjóðfræði og fornleifafræði
Nánar um stofnunina
Stofnun rannsóknasetra Háskóla Íslands heyrir undir rektor og byggist á níu faglega sjálfstæðum rannsóknasetrum sem eru staðsett víðsvegar um landið. Stofnunin var sett á fót árið 2001 með stofnun Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Hornafirði.
Samkvæmt reglum Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands skipar háskólaráð stofnuninni fimm manna ráðgefandi nefnd til þriggja ára í senn.
Árlega er haldinn ársfundur Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands og ársskýrsla gefin út.
Hafðu samband
Forstöðumaður Stofnunar rannsóknasetra HÍ er Sæunn Stefánsdóttir
Aðalbygging Háskóla Íslands /A-116
102 Reykjavík
Sími: 525 4041 og 892 8835