Skip to main content
24. mars 2020

Til nemenda um námsmat og próf

Rektor Háskóla Íslands sendi eftirfarandi tilkynningu til stúdenta 24. mars:

„Kæru nemendur.

Eitt það erfiðasta við þá tíma sem við erum nú að ganga í gegnum er óvissan. Þetta kemur t.d. skýrt fram í könnun sem Stúdentaráð gerði á líðan nemenda Háskóla Íslands. Niðurstöðurnar sýna svo ekki verður um villst að margir nemendur upplifa álag og kvíða vegna þess ástands sem er í samfélaginu.

Til að létta undir með nemendum getum við eytt óvissu eins og hægt er. Þess vegna vil ég ítreka eftirfarandi: 

•    Kennarar vinna nú hörðum höndum að því að útfæra námsmat, verkefni og próf sem henta nemendum og námi þeirra sem best.
•    Nær allir nemendur munu fá upplýsingar um breytta framkvæmd prófa og námsmats fyrir næstu helgi og enginn síðar en 30. mars.
•    Lögð verður áhersla á að hafa samráð við nemendur um þessar breytingar, koma til móts við þarfir þeirra og draga úr álagi.

Á fundum mínum með forsetum fræðasviða og neyðarstjórn Háskóla Íslands hefur verið algjör samhljómur um að draga úr álagi á nemendur eftir því sem kostur er. Það er fullur skilningur á því að aðstæður nemenda eru afar ólíkar og mjög krefjandi um þessar mundir. Þess vegna skiptir líka máli að í stað lokaprófa komi úrræði sem nemendur eru vanir og þeir þekkja. Í sumum tilvikum gæti það verið rafrænt heimapróf, í öðrum tilfellum verkefni og í enn öðrum gæti ritgerð verðið skynsamleg leið. Háskóli Íslands er mjög stór og fjölbreyttur skóli og þau úrræði sem gagnast nemendum best eru í mörgum tilvikum breytileg á milli fræðasviða og deilda.

Þetta er í samræmi við það sem flestir háskólar á Norðurlöndum hafa gert en við höfum fylgst vel með þeim leiðum sem aðrir háskólar fara í þessum efnum og haft þær til hliðsjónar við endurskoðun prófahalds hér.

Að lokum hvet ég ykkur til að fylgjast vel með tilkynningum frá umsjónarkennurum námskeiða og nýta ykkur netspjallið á vefsíðu Háskóla Íslands ef spurningar vakna.

Sameinuð vinnum við sigra. 

Með góðri kveðu,

Jón Atli Benediktsson, rektor“
 

Frá Háskólatorgi

„Á fundum mínum með forsetum fræðasviða og neyðarstjórn Háskóla Íslands hefur verið algjör samhljómur um að draga úr álagi á nemendur eftir því sem kostur er. Það er fullur skilningur á því að aðstæður nemenda eru afar ólíkar og mjög krefjandi um þessar mundir,“ segir m.a. í tilkynningu rektors til stúdenta í dag.