Háskólalestinni var hrundið af stað á hundrað ára afmælisári Háskóla Íslands árið 2011. Háskólinn vildi af þessu tilefni: fagna með landsmönnum aldarafmæli HÍ, með sérstakri áherslu á vísindamiðlun til ungs fólks og fjölskyldnabeina athygli að starfi Rannsóknasetra HÍ á landsbyggðinni, tengslum þeirra við samfélagið og rannsóknirkynna fjölþætta starfsemi Háskóla Íslands Viðtökur voru einkar góðar og viðburðir nutu mikilla vinsælda. Þess vegna hefur Háskólalestin haldið áfram heimsóknum sínum. Lögð er áhersla á lifandi vísindamiðlun til ungs fólks og fjölbreytta dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Upplýsingar um Háskólalestina og dagskrá má nálgast hér. Show Heimsókn undirbúin Heimsókn lestarinnar er ávallt undirbúin í nánu samstarfi við sveitarfélög og grunnskóla í heimabyggð. Oft eru einnig Rannsóknasetur Háskóla Íslands á landsbyggðinni virkir þátttakendur. Fyrirtæki á svæðinu sem tengjast á einhvern hátt vísinda- og fræðastarfi og/eða nýsköpun geta líka tekið þátt. Show Háskólalestin, gunnskólinn og heimamenn Í Háskólalestinni eru í boði valin námskeið úr Háskóla unga fólksins fyrir grunnskólanemendur. Einn skóladagur helgaður þeim viðburði. Daginn eftir er slegið upp litríkum vísindaveislum fyrir alla heimamenn með: stjörnuverisýnitilraunummælingum og pælingumóvæntum uppgötvunumskemmtilegum uppákomum Áhersla starfsmanna lestarinnar er á kynna vísindi á lifandi, skemmtilegan og fjölbreyttan hátt fyrir ungu fólki. Lestin hefur heimsótt á fjórða tug sveitarfélaga um allt land frá því að hún rúllaði fyrst af stað. Tengt efni Háskóli unga fólksins Vísindasmiðjan FLL tækni-og hönnunarkeppni Nýsköpunarkeppni grunnskólanna facebooklinkedintwitter