Háskóli Íslands er einn stærsti vinnustaður landsins. Auk rúmlega 15 þúsund nemenda starfa þar rúmlega sextán hundruð fastráðnir starfsmenn og yfir tvö þúsund stundakennarar og lausráðnir starfsmenn.Meginhlutverk Háskólans er að vera vísindaleg rannsókna- og fræðslustofnun. Til þess að svo megi vera þarf starfsfólk með ólíka menntun og bakgrunn. Markmið Háskóla Íslands er að vera í fremstu röð háskóla og að nota alþjóðlega viðurkennda mælikvarða við allt gæðamat á starfi skólans. Gerðar eru kröfur til kennara, stjórnenda og annars starfsfólks til að ná þessu markmiði. Í könnunum sem gerðar hafa verið um starfsumhverfi Háskóla Íslands kemur í ljós að starfsánægja er mikil, starfsandi góður og starfsfólk telur sig vera í góðri aðstöðu til að þróast í starfi. Starfsmannastefna Starfsmannastefna Háskóla Íslands var samþykkt 12. nóvember 2004. Meðal þeirra almennu væntinga sem Háskóli Íslands hefur til allra starfsmanna sinna eru að þeir sýni: kostgæfni í starfi ábyrgð, sjálfstæði og frumkvæði vilja og hæfni til samstarfs sveigjanleika og aðlögunarhæfni Heilbrigði og heilsurækt Íþróttahús Háskóla Íslands er opið öllum starfsmönnum og nemendum gegn vægu gjaldi. Þar er fullkominn tækjasalur auk hópatíma af ýmsu tagi. Fjölskyldustefna Fjölskyldustefna Háskóla Íslands Háskóli Íslands er fjölskylduvænn vinnustaður sem vill stuðla að jafnvægi milli vinnu og fjölskyldulífs starfsfólks, óháð fjölskylduaðstæðum þess og styðja það við að sinna fjölskylduábyrgð samhliða krefjandi störfum. Starfsumsóknir Hafir þú áhuga á að starfa hjá Háskóla Íslands má hér finna lista yfir störf í boði. Öll störf við skólann eru auglýst í samræmi við reglur um auglýsingaskyldu. Undantekningin er þó þegar háskólanemar starfa á grundvelli rannsóknarstyrks. Tengt efni Starfsmannasvið Launadeild Stefna Háskóla Íslands 2016-2021 Gildi Háskóla Íslands facebooklinkedintwitter