7/2026
HÁSKÓLARÁÐSFUNDUR
Ár 2026, fimmtudaginn 4. júní var haldinn fundur í háskólaráði Háskóla Íslands sem hófst kl. 13.00.
Fundinn sátu Silja Bára R. Ómarsdóttir, Arnar Þór Másson, Davíð Þorláksson, Elísabet Siemsen, Gréta Dögg Þórisdóttir (varamaður fyrir Andra Már Tómasson, á fjarfundi), Hólmfríður Garðarsdóttir, Katrín Atladóttir, Katrín Jakobsdóttir, Ólafur Pétur Pálsson (á fjarfundi), Ragný Þóra Guðjohnsen og Viktor Pétur Finnsson (á fjarfundi). Fundinn sat einnig Magnús Diðrik Baldursson sem ritaði fundargerð.
1. Setning fundar.
Rektor setti fundinn og greindi frá því að fundargerð síðasta fundar hefði verið samþykkt, undirrituð rafrænt og birt á háskólavefnum. Þá spurði rektor hvort einhver gerði athugasemd við dagskrá fundarins og var svo ekki. Loks spurði rektor hvort einhver lýsti sig vanhæfan til að taka þátt í meðferð máls á dagskrá og greindi Ólafur Pétur frá því að hann myndi ekki taka þátt í afgreiðslu dagskrárliðar 9k. Ekki voru gerðar athugasemdir við liðinn „bókfærð mál“ og skoðast hann því samþykktur.
2. Fjármál Háskóla Íslands. Staða, horfur, áætlun:
a. Rekstraryfirlit janúar-mars 2026.
Inn á fundinn kom Jenný Bára Jensdóttir, sviðsstjóri fjármálasviðs, og gerði grein fyrir framlögðu yfirliti um rekstur Háskóla Íslands fyrsta ársfjórðung ársins 2026. Málið var rætt og svaraði Jenný Bára spurningum.
Jenný Bára vék af fundi.
3. Málefni háskólaráðs:
a. Skilagrein starfshóps háskólaráðs um störf ráðsins á undangengnu starfsári, sbr. 10. gr. starfsreglna háskólaráðs.
Ólafur Pétur gerði grein fyrir skilagrein starfshóps háskólaráðs, sem skipaður var á fundi ráðsins 9. apríl sl., um störf ráðsins á undangengnu starfsári, sbr. 10. gr. starfsreglna háskólaráðs. Starfshópurinn var skipaður þeim Ólafi Pétri Pálssyni, varaforseta háskólaráðs, Davíð Þorlákssyni, Katrínu Jakobsdóttur og Viktori Pétri Finnssyni. Málið var rætt. Í skilagreininni koma fram uppbyggilegar ábendingar, en ekki eru lagðar til breytingar á starfsháttum og starfsreglum ráðsins.
b. Funda- og starfsáætlun háskólaráðs 2025-2026. Lokastaða.
Rektor fór yfir framlagt uppgjör funda- og starfsáætlunar háskólaráðs starfsárið 2025-2026, sem upphaflega var samþykkt í ráðinu 2. október 2025.
– Samþykkt.
4. Ytri úttekt á Háskóla Íslands og undirbúningur nýrrar heildarstefnu fyrir tímabilið 2026-2031, sbr. síðasta fund.
Inn á fundinn komu Rögnvaldur Jóhann Sæmundsson, aðstoðarrektor vísinda og þverfræðileika, og Þór Hauksson, stefnu- og gæðastjóri, og gerðu grein fyrir stöðu mála varðandi undirbúning ytri úttektar Gæðamats háskóla á Háskóla Íslands og stöðu mála og næstu skrefum við mótun nýrrar heildarstefnu fyrir skólann. Málið var rætt og spurningum svarað.
Rögnvaldur og Þór viku af fundi.
5. Staða framkvæmda- og viðhaldsverkefna, sbr. fund ráðsins 8. janúar sl.
Inn á fundinn kom Kristinn Jóhannesson, sviðsstjóri framkvæmda- og tæknisviðs, og fór yfir framlagt yfirlit um yfirstandandi og áformuð framkvæmda- og viðhaldsverkefni á árinu 2026 og á næstu árum. Málið var rætt og svaraði Kristinn spurningum fulltrúa í háskólaráði.
Kristinn vék af fundi.
Kaffihlé.
6. Lög um breytingu á lögum um opinbera háskóla nr. 85/2008 (háskólasamstæður). Staða mála og næstu skref.
Inn á fundinn kom Halldór Jónsson, sviðsstjóri vísinda- og nýsköpunarsviðs, og gerði grein fyrir nýsamþykktum lögum um háskólasamstæðu Háskóla Íslands og Háskólans á Hólum, stöðu mála og næstu skrefum við að hrinda háskólasamstæðunni í framkvæmd. Málið var rætt og svaraði Halldór spurningum. Fram kom að málið verður á dagskrá aukafundar háskólaráðs 25. júní nk.
Halldór vék af fundi.
7. Djúptæknisetur, sbr. fund 9. apríl sl.
Inn á fundinn komu Sigurður Harðarson, stjórnandi Centra fyrirtækjaráðgjafar, Guðmundur R. Jónsson, framkvæmdastjóri fjármála og reksturs, og Rögnvaldur Jóhann Sæmundsson. Sigurður fór yfir minnisblað sitt um undirbúning og forsendur byggingar og rekstrar Djúptækniseturs á lóð Vísindagarða Háskóla Íslands ehf., en verkefnið var kynnt á fundum háskólaráðs 5. mars og 9. apríl sl. Málið var rætt ítarlega og svaraði Sigurður spurningum.
Sigurður, Guðmundur og Rögnvaldur viku af fundi.
– Að umræðu lokinni samþykkti háskólaráð fyrir sitt leyti samhljóða að heimila Vísindagörðum Háskóla Íslands ehf. að óska eftir lóð á svæði félagsins við Reykjavíkurborg vegna fyrirhugaðrar byggingar Djúptækniseturs. Jafnframt samþykkti háskólaráð að fasteignin Sturlugata 8, sem er í eigu Vísindagarða, verði ekki seld til að fjármagna Djúptæknisetrið nema með samþykki ráðsins og lagði áherslu á mikilvægi þess að huga strax að uppbyggingu og rekstrarfyrirkomulagi væntanlegra rannsóknainnviða sem eru meginforsenda fyrir tilvist setursins. Hólmfríður greiddi atkvæði á móti og lagði fram svohljóðandi bókun: „Ég þakka Vísindagörðum greinargóða framsetningu gagna og Centra fyrir mat á þeim. Þrátt fyrir framkomna rökfærslu er ég ekki sannfærð um brýna nauðsyn þess að ráðast í frekari uppbyggingu húsnæðis til útleigu á háskólasvæðinu um þessar mundir – sérstaklega í ljósi þess að engir öruggir leigusamningar eru í höfn. Háskóli Íslands hefur nýtekið við rekstri Eddu og Sögu og reisir nýtt heilbrigðisvísindahús með ærnum tilkostnaði og gríðarlegum vaxtakostnaði um þessar mundir. Að bæta á útgjaldalistann – þótt undir annarri kennitölu sé – á sama tíma og ítrasta aðhalds er gætt í öllum öðrum rekstri skólans hljómar í senn óráðlegt og mótsagnakennt. Ég greiði því atkvæði gegn tillögunni.“
8. Álit kærunefndar í málefnum nemenda nr. 8/2025 og nr. 3/2026.
Inn á fundinn kom Ari Karlsson, lögmaður, og settur formaður kærunefndar í málefnum nemenda í máli nr. 8/2025 og gerði hann grein fyrir áliti nefndarinnar. Málið var rætt og svaraði Ari spurningum.
Ari vék af fundi.
– Samþykkt einróma að fallast á þau rök sem fram koma í áliti kærunefndar í málefnum nemenda í máli nr. 8/2025 og er niðurstaða háskólaráðs í samræmi við tillögur nefndarinnar.
Næst kom inn á fundinn Trausti Fannar Valsson, formaður kærunefndar í málefnum nemenda, og gerði grein fyrir áliti nefndarinnar í máli nr. 3/2026. Málið var rætt og svaraði Trausti Fannar spurningum.
Trausti Fannar vék af fundi.
– Samþykkt að fallast á þau rök sem fram koma í áliti kærunefndar í málefnum nemenda í máli nr. 3/2026 og er niðurstaða háskólaráðs í samræmi við tillögur nefndarinnar. Viktor Pétur greiddi atkvæði á móti.
9. Bókfærð mál.
a. Frá rektorsskrifstofu: Verklagsreglur um reglusetningarferli háskólaráðs.
– Samþykkt.
b. Frá öryggisnefnd: Verklagsreglur um öryggi viðburða.
– Samþykkt.
c. Frá rektorsskrifstofu: Valnefnd vegna árlegrar viðurkenningar til starfsfólks Háskóla Íslands.
– Samþykkt. Valnefndin er skipuð þeim Berki Hansen, prófessor emeritus, formaður, Ingibjörgu Svölu Jónsdóttur, prófessor emerita, fulltrúi fyrrverandi starfsfólks, og Isabel Alejandra Diaz, stjórnsýslufræðingi, fulltrúi fyrrverandi nemenda.
e. Skipulagsskrá fyrir Gagnís.
– Samþykkt.
f. Fulltrúar Háskóla Íslands í stjórn Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.
– Samþykkt. Fulltrúar Háskóla Íslands í stjórn Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum eru Torfi H. Tulinius, prófessor við Íslensku- og menningardeild, Guðrún Þórhallsdóttir, dósent við Íslensku- og menningardeild, og Guðrún Dröfn Whitehead, lektor við Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild. Varamenn eru: Brynja Þorgeirsdóttir, lektor við Íslensku- og menningardeild, Sverrir Jakobsson, prófessor við Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði, og Valdimar Tryggvi Hafstein, prófessor við Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild. Skipunartíminn er frá 1. september 2026 til 31. ágúst 2030.
g. Stjórn Háskólaútgáfunnar.
– Samþykkt. Stjórnina skipa þau Ragna Benedikta Garðarsdóttir, aðstoðarrektor menntunar og starfsumhverfis og prófessor við Sálfræðideild. Gauti Kristmannsson, prófessor við Íslensku- og menningardeild, og Jenný Bára Jensdóttir, sviðsstjóri fjármálasviðs. Skipunartími þeirra er til þriggja ára, frá 1. júlí 2026 til 30. júní 2029.
h. Nýr fulltrúi Háskóla Íslands í stjórn Auðnu tæknitorgs.
– Samþykkt. Nýr fulltrúi Háskóla Íslands í stjórn Auðnu tæknitorgs verður Magnús Þór Torfason, prófessor við Viðskiptafræðideild og forseti Félagsvísindasviðs. Skipunartíminn er til aðalfundar 2027.
i. Nýr formaður stjórnar Menningar- og framfarasjóðs Ludvig Storr.
– Samþykkt. Nýr formaður stjórnar Menningar- og framfarasjóðs Ludvig Storr er Anna María Pitt.
j. Skipun kærunefndar í málefnum nemenda.
– Samþykkt. Kærunefnd í málefnum nemenda er skipuð þeim Trausta Fannari Valssyni, dósent við Lagadeild, formaður (varamaður: Valgerður Sólnes, prófessor við Lagadeild), Birni Þorsteinssyni, prófessor við Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði (varamaður: Ragnar Pétur Ólafsson, prófessor við Sálfræðideild), og Sigríði Rut Franzdóttur, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild (varamaður: Svanhildur Þorvaldsdóttir, dósent við Stjórnmálafræðideild). Með nefndinni starfar Magnús Jökull Sigurjónsson, lögfræðingur á skrifstofu rektors.
k. Endurnýjað erindisbréf nefndar um endurskoðun á deildaskipan Háskóla Íslands.
– Samþykkt. Nefnd um endurskoðun á deildaskipan Háskóla Íslands er skipuð þeim Ólafi Pétri Pálssyni, prófessor við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild og varaforseta háskólaráðs, formaður, Guðmundi Frey Úlfarssyni, prófessor við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild, tilnefndur af Verkfræði- og náttúruvísindasviði, Haraldi Bernharðssyni, dósent við Íslensku- og menningardeild, tilnefndur af Hugvísindasviði, Sigurbjörgu Guðmundsdóttur, fulltrúi nemenda, tilnefnd af Stúdentaráði HÍ, Sædísi Sævarsdóttur, prófessor við Læknadeild, tilnefnd af Heilbrigðisvísindasviði, Torfa Hjartarsyni, lektor við Deild faggreinakennslu, tilnefndur af Menntavísindasviði, og Þorgerði Jennýjardóttir Einarsdóttur, prófessor við Stjórnmálafræðideild, tilnefnd af Félagsvísindasviði.
Ólafur Pétur tók ekki þátt í afgreiðslu málsins.
10. Mál til fróðleiks.
a. Ársfundur Háskóla Íslands 2026.
b. Brautskráning kandídata í Laugardalshöll 13. júní 2026.
c. Drög dagatals Háskóla Íslands 2026-2027.
d. Samstarfssamningur Háskóla Íslands og Íþrótta- og ólympíusambands Íslands vegna afreksíþróttafólks.
e. Úthlutun úr doktorsstyrkjasjóði Háskóla Íslands.
f. Nýr forseti Menntavísindasviðs.
g. Fréttabréf Háskólavina, dags. 28. maí 2026.
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 15.40.