Skip to main content
27. maí 2026

Freyja Hreinsdóttir ráðin forseti Menntavísindasviðs HÍ

Freyja Hreinsdóttir ráðin forseti Menntavísindasviðs HÍ - á vefsíðu Háskóla Íslands

Freyja Hreinsdóttir, prófessor í stærðfræði og stærðfræðimenntun við Deild faggreinakennslu, hefur verið ráðin forseti Menntavísindasviðs Háskóla Íslands til næstu fimm ára. Hún var einn þriggja umsækjenda um starfið og tekur við því 1. júlí næstkomandi. 

Freyja lauk BS-prófi í stærðfræði frá Háskóla Íslands árið 1986, MS-prófi í sömu grein frá Northwestern University í Bandaríkjunum og doktorsprófi í greininni frá Stokkhólmsháskóla 1997 en hún gegndi doktorsnemastöðum við bæði Northwestern og Stokkhólmsháskóla á árunum á undan. Þá lauk hún kennsluréttindanámi í stærðfræði frá Háskóla Íslands árið 2011. 

Freyja starfaði sem lektor í afleysingum við Stokkhólmsháskóla, KTH og Mälardalens University í Svíþjóð 1997-1998, var nýdoktor í stærðfræði við Stokkhólmsháskóla 1998-2001 og sérfræðingur í stærðfræði við Raunvísindastofnun Háskólans 2001-2005. Freyja starfaði sem aðjunkt við Kennaraháskóla Íslands 2005-2006, tók þá við starfi dósents við sama skóla og síðar við Menntavísindasvið HÍ eftir sameiningu Háskóla Íslands og Kennaraháskólans. Hún hlaut framgang í starf prófessors 2021. 

Freyja hefur gegnt fjölmörgum trúnaðar- og stjórnunarstörfum innan og utan HÍ og var m.a. formaður námsbrautar, varadeildarforseti og deildarforseti í afleysingu við Kennaradeild Menntavísindasviðs 2013-2017 og síðan deildarforseti Deildar faggreinakennslu 2018-2022. Freyja hefur auk þess setið í fjölmörgum stjórnum, nefndum, ráðum og hópum fyrir hönd HÍ. 

Freyja hefur enn fremur tekið þátt í ýmsum samstarfsverkefnum innan- og utanlands og hefur m.a. setið í stjórn SamSTEM frá 2023, í stjórn Nordic GeoGebra Network frá 2010 og var þar formaður um árabil. Freyja hefur víðtæka reynslu af kennslu í stærðfræði, þ.m.t. hönnun og skipulagningu námskeiða, við fjóra háskóla í þremur löndum. Hún hefur auk þess leiðbeint 13 meistaranemum og tveimur doktorsnemum. Þá er hún höfundur bæði greina í alþjóðlegum vísindatímaritum og bókakafla.

„Menntavísindasvið gegnir mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi, í menntun kennara og annarra fagstétta, öflugu rannsókna- og þróunarstarfi og samstarfi við skóla, kennara, samfélag og menntamálayfirvöld. Ég hlakka til að vinna með starfsfólki, nemendum, fræðasamfélaginu og samstarfsaðilum víða um menntakerfið að því að efla þetta þýðingarmikla starf enn frekar,“ segir Freyja Hreinsdóttir.

„Freyja tekur við öflugu sviði sem hefur komið sér vel fyrir á nýjum stað undir traustri forystu fráfarandi sviðsforseta, Kolbrúnar Þ. Pálsdóttur. Með flutningum Menntavísindasviðs sköpuðust tækifæri til aukinnar samþættingar og samstarfs innan háskólasamfélagsins og jafnframt til að styrkja enn frekar tengingu sviðsins við nærumhverfi sitt með glæsilega, nýja aðstöðu í Sögu sem miðpunkt. Mikilvægt er að sviðið hafi áfram sterka faglega forystu og sýn á áframhaldandi þróun og eflingu kennaramenntunar, m.a. á sviði STEM-menntunar sem kallað er eftir úr samfélaginu. Freyja býr yfir mikilvægri reynslu til að leiða þá vinnu innan Menntavísindasviðs. Um leið og ég þakka Kolbrúnu Þ. Pálsdóttur fyrir hennar óeigingjarna starf í þágu Menntavísindasviðs og HÍ óska ég Freyju velfarnaðar í nýju starfi og hlakka til samstarfs við hana í forystusveit Háskóla Íslands,“ segir Silja Bára.

Menntavísindasvið er eitt fimm fræðasviða Háskóla Íslands en eins og kunnugt er var starfsemi þess flutt í Sögu á síðasta ári. Undir sviðið heyra fjórar deildir: Deild faggreinakennslu, Deild menntunar og margbreytileika, Deild kennslu- og menntunarfræði og Deild heilsueflingar, íþrótta og tómstunda. Við sviðið starfa um 250 manns við kennslu, rannsóknir og stjórnsýslu og á þriðja þúsund nemendur.

Freyja Hreinsdóttir