8/2026
HÁSKÓLARÁÐSFUNDUR
Ár 2026, fimmtudaginn 25. júní var haldinn á Teams fundur í háskólaráði Háskóla Íslands sem hófst kl. 13.00.
Fundinn sátu Silja Bára R. Ómarsdóttir, Andri Már Tómasson, Arnar Þór Másson, Davíð Þorláksson, Hólmfríður Garðarsdóttir, Katrín Atladóttir, Katrín Jakobsdóttir, Ólafur Pétur Pálsson, Ragný Þóra Guðjohnsen og Viktor Pétur Finnsson. Fundinn sat einnig Magnús Diðrik Baldursson sem ritaði fundargerð. Elísabet Siemsen var fjarstödd og varamaður hennar einnig.
1. Setning fundar.
Rektor setti fundinn og greindi frá því að fundargerð síðasta fundar hefði verið samþykkt, undirrituð rafrænt og birt á háskólavefnum. Þá spurði rektor hvort einhver gerði athugasemd við dagskrá fundarins og var svo ekki. Loks spurði rektor hvort einhver lýsti sig vanhæfan til að taka þátt í meðferð máls á dagskrá og var svo ekki. Ekki voru gerðar athugasemdir við liðinn „bókfærð mál“ og skoðast hann því samþykktur.
2. Háskólasamstæða Háskóla Íslands og Háskólans á Hólum. Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið eru fulltrúar í háskólaráði Háskólans á Hólum.
Inn á fundinn komu fulltrúar úr háskólaráði Háskólans á Hólum – Hólaskóla, þau Hólmfríður Sveinsdóttir, rektor, Camille Leblanc, Einar Kristinn Guðfinnsson, Guðrún Jóhanna Stefánsdóttir, Jóhanna Ey Harðardóttir, Sólveig Birna H. Elísabetardóttir og Sveinn Margeirsson. Einnig komu inn á fundinn Halldór Jónsson, sviðsstjóri vísinda- og nýsköpunarsviðs HÍ, Sæunn Stefánsdóttir, sviðsstjóri þróunarsviðs HÍ, og Sigríður Huld Jónsdóttir, sem á sæti í framkvæmdaráði Hóla.
a. Kynning á stofnsamkomulagi háskólasamstæðu.
Fyrir fundinum lágu drög að samningi um stofnun háskólasamstæðu Háskóla Íslands. Halldór Jónsson gerði grein fyrir málinu og var það rætt ítarlega.
b. Kynning á bráðabirgðaákvæði við reglur fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Fyrir fundinum lá einnig tillaga að bráðabirgðaákvæði við reglur fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009 er varðar háskólasamstæðu Háskóla Íslands. Halldór gerði grein fyrir málinu og var það rætt.
Að umræðu lokinni viku gestirnir frá Háskólanum á Hólum, Halldór og Sæunn af fundi.
3. Staðfesting háskólaráðs á stofnsamkomulagi og afgreiðsla bráðabirgðaákvæðis við reglur fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Rektor bar samning um stofnun háskólasamstæðu Háskóla Íslands og bráðabirgðaákvæði við reglur fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009 undir atkvæði.
– Samþykkt einróma.
Rektor þakkaði öllum sem komu að undirbúningi málsins fyrir vandaða vinnu. Sagði rektor tilkomu háskólasamstæðu Háskóla Íslands marka tímamót í sögu Háskóla Íslands og háskólastigsins í landinu sem muni efla æðri menntun og vísindastarf á Íslandi.
4. Tillaga Læknadeildar um kjör heiðursdoktors.
Rektor gerði grein fyrir málinu.
– Samþykkt einróma.
5. Bókfærð mál.
a. Skipan vísindanefndar og málnefndar Háskóla Íslands.
– Samþykkt. Vísindanefnd háskólaráðs er skipuð þeim Rögnvaldi J. Sæmundssyni, prófessor við Iðnaðarverkfræði- vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild á Verkfræði- og náttúruvísindasviði og aðstoðarrektor vísinda og þverfræðileika, formaður, Dóróteu Höeg Sigurðardóttur, lektor við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild á Verkfræði- og náttúruvísindasviði (varamaður: Sigurður Freyr Hafstein, prófessor við Raunvísindadeild á Verkfræði- og náttúruvísindasviði), Ingibjörgu Gunnarsdóttur, prófessor við Matvæla- og næringarfræðdeild á Heilbrigðisvísindasviði (varamaður: Eiríkur Steingrímsson, prófessor við Læknadeild á Heilbrigðisvísindasviði), Margréti Sigmarsdóttur, prófessor við Deild heilsueflingar, íþrótta og tómstunda á Menntavísindasviði (varamaður: Guðrún Sunna Gestsdóttir, dósent við Deild heilsueflingar, íþrótta og tómstunda á Menntavísindasviði), Tinnu Laufeyju Ásgeirsdóttur, prófessor við Hagfræðideild á Félagsvísindasviði (varamaður N.N.), Vali Ingimundarsyni, prófessor við Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði á Hugvísindasviði (varamaður: Ragnheiður Kristjánsdóttir, prófessor við Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði á Hugvísindasviði), og N.N., fulltrúa nemenda. Skipunartími nefndarinnar er frá 1. júlí 2026 til 30. júní 2029. Rektor mun ganga frá endanlegri skipun nefndarinnar.
Málnefnd Háskóla Íslands er skipuð þeim Rósu Signýju Gísladóttur, dósent við Íslensku- og menningardeild á Hugvísindasviði, formaður, Guðmundi Frey Úlfarssyni, prófessor við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild á Verkfræði- og náttúruvísindasviði, Guðrúnu Lárusdóttur, verkefnisstjóra á mannauðssviði sameiginlegrar stjórnsýslu, Heimi Frey Viðarssyni, lektor við Deild faggreinakennslu á Menntavísindasviði, Ingólfi V. Gíslasyni, prófessor við Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild á Félagsvísindasviði, Kolbrúnu Friðriksdóttur, lektor við Íslensku- og menningardeild á Hugvísindasviði, Þóru Másdóttur, dósent við Læknadeild á Heilbrigðisvísindasviði, og N.N., fulltrúa nemenda. Skipunartími nefndarinnar er frá 1. júlí 2026 til 30. júní 2029. Rektor mun ganga frá endanlegri skipun nefndarinnar.
b. Jafnréttisnefnd og endurskoðað erindisbréf nefndarinnar.
– Samþykkt. Jafnréttisnefnd háskólaráðs er skipuð þeim Hrafnhildi Snæfríðardóttur Gunnarsdóttur, lektor við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild á Heilbrigðisvísindasviði, formaður, Ásdísi Aðalbjörgu Arnalds, lektor við Félagsráðgjafardeild á Félagsvísindasviði (varamaður N.N.), Ásdísi Helgadóttur, prófessor við Iðnaðaverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild á Verkfræði- og náttúruvísindasviði (varamaður: Jón Emil Guðmundsson, prófessor við Raunvísindadeild á Verkfræði- og náttúruvísindasviði), Birni Þorsteinssyni, prófessor við Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði á Hugvísindasviði, (varamaður: Sigríður Guðmarsdóttir, prófessor við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild á Hugvísindasviði), Ernu Magnúsdóttur, dósent við Læknadeild á Heilbrigðisvísindasviði (varamaður: Sævar Ingþórsson, dósent við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild á Heilbrigðisvísindasviði), Heimi Frey Viðarssyni, lektor við Deild faggreinakennslu á Menntavísindasviði (varamaður N.N.), Sólrúnu Sigurðardóttur, verkefnisstjóra á framkvæmda- og tæknisviði sameiginlegrar stjórnsýslu (varamaður N.N.), og N.N. fulltrúa nemenda. Skipunartími nefndarinnar er frá 1. júlí 2026 til 30. júní 2029. Rektor mun ganga frá endanlegri skipun nefndarinnar.
Einnig var samþykkt endurskoðað erindisbréf nefndarinnar.
c. Námsstjórn meistara- og doktorsnáms í umhverfis- og auðlindafræði.
– Samþykkt. Námsstjórnina skipa þau Anna Dóra Sæþórsdóttir, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild á Verkfræði- og náttúruvísindasviði, formaður, Gunnar Stefánsson, prófessor við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild á Verkfræði- og náttúruvísindasviði (varamaður: Guðfinna Th. Aðalgeirsdóttir, prófessor við Jarðvísindadeild á Verkfræði- og náttúruvísindasviði), Jakob Frímann Þorsteinsson, lektor við Deild heilsueflingar, íþrótta og tómstunda á Menntavísindasviði (varamaður: Edda Elísabet Magnúsdóttir, lektor við Deild faggreinakennslu á Menntavísindasviði), Lára Jóhannsdóttir, prófessor í umhverfis- og auðlindafræði við Verkfræði- og náttúruvísindasvið, María Guðjónsdóttir, prófessor við Matvæla- og næringarfræðideild á Heilbrigðisvísindasviði (varamaður Ólafur Ögmundarson, dósent við Lyfjafræðideild á Heilbrigðisvísindasviði), Sigríður Guðmarsdóttir, prófessor við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild á Hugvísindasviði (varamaður: Sveinn Yngvi Egilsson, prófessor við Íslensku- og menningardeild á Hugvísindasviði), og Þröstur Olaf Sigurjónsson, prófessor við Viðskiptafræðideild á Félagsvísindasviði (varamaður: Hulda Þórisdóttir, prófessor við Stjórnmálafræðideild á Félagsvísindasviði).
d. Vettvangsakademían á Hofstöðum í Mývatnssveit.
– Samþykkt.
e. Fulltrúar Háskóla Íslands í stjórn Fasteigna HÍ ehf.
– Samþykkt að fulltrúar Háskóla Íslands í stjórn Fasteigna Háskóla Íslands verði Katrín Jakobsdóttir, fv. forsætisráðherra, fulltrúi í háskólaráði valinn af ráðinu, Guðmundur R. Jónsson, framkvæmdastjóri í sameiginlegri stjórnsýslu Háskóla Íslands, Guðný Björk Eydal, prófessor við Félagsráðgjafardeild á Félagsvísindasviði. Varamaður verði Ragný Þóra Guðjohnsen, dósent á Menntavísindasviði, fulltrúi háskólasamfélagsins í háskólaráði.
f. Stjórn Styrktarsjóða Háskóla Íslands.
– Samþykkt. Stjórn Styrktarsjóða Háskóla Íslands er skipuð þeim Gylfa Magnússyni, prófessor við Viðskiptafræðideild á Félagsvísindasviði, formaður, Valgerði Sólnes, prófessor við Lagadeild á Félagsvísindasviði, og Jóhanni Ómarssyni, viðskiptafræðingi og ráðgjafa. Varamaður er Sigurður Jóhannesson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands. Skipunartíminn er frá 1. júlí 2026 til 30. júní 2029.
g. Frá Heilbrigðisvísindasviði: Tillaga um fjöldatakmörkun í námsleiðina hjúkrunarfræði fyrir fólk með annað háskólapróf við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild 2026-2027 ásamt tillögu að breytingum á reglum nr. 153/2010 um takmörkun á inntöku nemenda í tilteknar námsgreinar, með síðari breytingum.
– Samþykkt.
h. Siðanefnd Háskóla Íslands.
– Samþykkt. Siðanefnd Háskóla Íslands er skipuð þeim Þorgeiri Örlygssyni, fv. hæstaréttardómara og fv. prófessor við Lagadeild á Félagsvísindasviði, formaður, skipaður af rektor án tilnefningar, Eyju Margréti Jóhönnu Brynjarsdóttur, prófessor við Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði á Hugvísindasviði, tilnefnd af Félagi prófessora við ríkisháskóla, og Ármanni Höskuldssyni, rannsóknarprófessor við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, tilnefndur af Félagi háskólakennara. Skipunartími nefndarinnar er frá 1. júlí 2026 til 30. júní 2029.
6. Mál til fróðleiks.
a. Ávarp rektors við brautskráningu kandídata í Laugardalshöll 13. júní 2026.
b. Nýr forseti Hugvísindasviðs Háskóla Íslands.
c. Stjórn menningar- og framfarasjóðs Ludvigs Storr.
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 13.55.