Snjallræði verður háskólahraðall

Snjallræði, fyrsti sameiginlegi háskólahraðall Íslands, hófst á dögunum í Grósku hugmyndahúsi í Vatnsmýri og á næstu mánuðum munu aðstandendur tíu spennandi nýsköpunarverkefna vinna að þróun þeirra undir leiðsögn sérfræðinga frá Háskóla Íslands, Háskólanum á Akureyri, Háskólanum í Reykjavík og fleiri aðilum.
Snjallræði hefur frá árinu 2018 reynst öflugur vettvangur fyrir stórhuga nýsköpun og sprotahönnun og afar fjölbreyttar hugmyndir hafa fengið þar brautargengi í gegnum árin. Ný viljayfirlýsing var undirrituð í sumar um nýtt og formlegra samstarf háskólanna þriggja um verkefnastjórn hraðalsins í samtarfi við Reykjavíkurborg, Marel og Vísindagarða HÍ. Það hefur í för með sér að áhersla verður á sprotahönnun innan háskólanna í hraðlinum og þróun hugmynda sem eiga rætur í vísindasamfélaginu en áhersla er sem fyrr á verkefni sem geta haft víðtæk, samfélagsleg áhrif.
Hraðallinn er eins og áður rekinn í samstarfi við MIT DesignX, nýsköpunarhraðal sem tengdur er hönnunarsviði MIT-háskólans í Boston, og byggist Snjallræði á aðferðafræði hans. Í ár munu þjálfarar frá MIT þjálfa íslensku þjálfarana samkvæmt svokölluðu “Train the trainers” fyrirkomulagi og það mikill heiður því þetta er í fyrsta skipti sem þau sinna slíkri þjálfun utan MIT.
Fulltrúar Háskólans á Akureyri, Háskólans í Reykjavík og Háskóla Íslands undirrituðu í sumar viljayfirlýsingu um nýtt og formlegra samstarf háskólanna þriggja um verkefnastjórn hraðalsins í samtarfi við Reykjavíkurborg, Marel og Vísindagarða HÍ. Frá vinstri: Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor HA, Ólafur Eysteinn Sigurjónsson, forseti tæknisviðs HR, og Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor HÍ. MYND/Kristinn Ingvarsson

Tíu teymi valin til þátttöku
Alls bárust 45 umsóknir í Snjallræði að þessu sinni og voru 10 teymi valin til þátttöku í hraðlinum í haust, en honum lýkur formlega í desember.
Þau eru:
Araxni: Teymið er skipað þeim Mikael Norðquist og Heiðrúnu Ingu Guðmundsdóttur. Verkefni þeirra snýr að framleiðslu á sterku og umhverfisvænu köngulóarsilki til notkunar í heilbrigðis- og tæknigeiranum.
Vera: Teymið er skipað þeim Sigríði Kristínu Hrafnkelsdóttur, Hildi Harðardóttur og Birnu Björnsdóttur. Verkefnið snýr að því þróa lausnir sem brúa bilið í þjónustu og samskiptum, styrkja stöðu einstaklingra í viðkvæmri stöðu og gera heilbrigðis- og velferðakerfið skilvirkara og mannúðlegra.
Gleipnir Lífsmiðja: Teymið er skipað þeim Guðjóni Ólafssyni og Henný Adolfsdóttur. Um er að ræða líftæknifyrirtæki þar sem virkjaður er erfðamáttur gersveppa og hönnunarlíffræði nýtt til að skapa byltingarkenndar lausnir í lyfjaþróun.
CO2 conversion: Teymið er skipað þeim Younes Abghoui, Mohammad Awais og Mohammad Reza Khaniha. Verkefnið snýst um skynsamlega hönnun og uppgötvun efna til að fanga CO₂ og umbreyta því í vistvænt eldsneyti við umhverfisaðstæður með rafhvötun.
Tón-tyngi: Teymið er skipað Helgu Rut Guðmundsdóttur, Aleksöndru Kozimala, Adam J. Switala og Nataliu Duarte Jeremías. Hugmyndin snýr að því að hanna umgjörð um rafrænan söngvabanka með textum, nótum, hljóðskrám og kennsluefni, sem yrði aðgengilegur fyrir breiðan hóp notenda fagfólks, foreldra og kennara.
Lengi býr að fyrstu gerð: Teymið er skipað þeim Kristínu Petrínu Pétursdóttur og Fannýju Kristínu H. Maríudóttur. Hugmynd þeirra byggist á því að hanna skólamatseðla með næringarríkum mat, elduðum frá grunni, sem ætlaðir eru til að kynna börn fyrir ólíku hráefni og draga úr matarsóun.
EcoDecom: Teymið er skipað þeim Jónasi Inga Ragnarssyni, Óla Sævari Ólafssyni og Partha Sarkar. Innan EcoDecom er hugmyndin að þróa búnað sem gerir niðurrif mannvirkja á rúmsjó hagkvæmara og umhverfisvænna.
Immigrant Inclusion: Að hugmyndinni stendur Magnea Marinósdóttir og snýr verkefnið að inngildingu fólks af erlendum uppruna með áherslu á borgaralega og lýðræðislega þátttöku.
GeoMerge: Teymið er skipað þeim Agata Rostran Largaespada, Ximena Guardia Muguruza og Guðjóni Helga Eggertssyni. Hugmyndin snýr að þróun nýstárlegra lausna fyrir stjórnun jarðhitageyma og tækni til að bæta afköst og sjálfbærni á jarðhitasvæðum.
Charbo: Teymið skipa þau Sigrún Emelía Karlsdóttir og Liam O'Malley. Með Charbo er ætlun þeirra að umbreyta lífrænum úrgangi í öruggan og næringarríkan áburð til þess að bæta íslenskan jarðveg, örva vöxt plantna og draga úr þörf fyrir innfluttan áburð.
