Nemendur HÍ stýra samsýningu nemenda LHÍ í Grasagarðinum

Sýningin Dvelur verður opnuð í Grasagarði Reykjavíkur í Laugardal laugardaginn 22. mars klukkan 15-17. Um er að ræða samsýningu á verkum nemenda í meistaranámi í myndlist við Listaháskóla Íslands en sýningarstjórar eru meistara- og doktorsnemar í listfræði við Háskóla Íslands. Sýningin verður svo opin alla daga milli kl. 10 og 15 til sunnudagsins 30. mars.
Verk sýningarinnar snerta á hugmyndum um viðhorf og tengsl mannsins við náttúruna. Augum gesta er beint að duldum veruleika plantna í garðinum, hvort sem það felst í því að draga falin kerfi upp á yfirborðið eða gróður fram í sviðsljósið sem á til að falla í skuggann. Listafólk sýningarinnar hefur unnið í nánum tengslum við Grasagarð Reykjavíkur og flóruna. Þau mæta náttúrunni sem jafningja og skoða hvað það er sem manneskjan getur lært af henni. Með sýningunni gefst gestum tækifæri til að máta sig við umhverfið og endurskoða hugmyndir sínar gagnvart gróðrinum og lífi hans.
Þátttakendur eru Berglind María Tómasdóttir, Irene Hrafnan Bermudez, Jeremias Rumpl, Lucrezia Costa, Marco Dorn, Mirjam Maeekalle, Natalia Kasprzycka, Sarah Moore, Sepideh Safyari og Svend Holmboe Pedersen. Sýningarstjórar eru Agnes Eir Jóhannsdóttir, Sigríður Regína Sigurþórsdóttir og Sunna Austmann Bjarnadóttir.
Boðið verður upp á leiðsagnir um sýninguna:
- Vasaljósaleiðsögn á löngum fimmtudegi 27. mars klukkan 20:30
- Laugardaginn 29. mars klukkan 14:00.
Sýningin Dvelur verður opnuð í Grasagarði Reykjavíkur í Laugardal laugardaginn 22. mars klukkan 15-17. Um er að ræða samsýningu á verkum nemenda í meistaranámi í myndlist við Listaháskóla Íslands en sýningarstjórar eru meistara- og doktorsnemar í listfræði við Háskóla Íslands.