Skip to main content
18. mars 2025

Nemendum HÍ býðst þátttaka í samstarfsverkefni Íslands og Póllands

Nemendum HÍ býðst þátttaka í samstarfsverkefni Íslands og Póllands - á vefsíðu Háskóla Íslands

Opnað hefur verið fyrir umsóknir nemenda við Háskóla Íslands um þátttöku í verkefninu ReyVarstígur – frá Reykjavík til Varsjár: á slóðum pólsku upplýsingarinnar. Verkefnið samanstendur af netfyrirlestrum, tveggja vikna námsdvöl í Varsjá og málþingi í Reykjavík og fá þátttakendur m.a. greitt fyrir flugferðir, gistingu og pólskunámskeið.

Umsóknarfrestur er til 16. maí og 30. maí verður tilkynnt um val á þátttakendum úr hópi umsækjenda.

Þátttakendur taka þátt í fjölbreyttri menningardagskrá í Varsjá með skoðunarferðum, heimsóknum á söfn og menningarstofnanir og þátttöku í menningarviðburðum.   

Allir skráðir nemendur við Háskóla Íslands geta sótt um þátttöku í verkefninu en þeir nemendur fá forgang sem eru byrjendur í pólsku, hafa áhuga á sögu og menningu Póllands og vilja auka þekkingu sína á upplýsingastefnunni í Evrópu. Gott vald á ensku er einnig nauðsynlegt skilyrði fyrir þátttöku. Tíu pláss eru í boði og þátttakendur verða valdir í samræmi við gæði umsókna.

Þeir nemendur sem ljúka öllum þáttum verkefnisins fá það metið til 5 ECTS eininga.   

Allar nánari upplýsingar um umsóknarferlið og verkefnið má finna á vefsvæði þess, bæði á íslensku (hi.is/samstarf/reyvarstigur) og á ensku (english.hi.is/collaboration/international-collaboration/reyvarstigur).

Verkefnið er styrkt af NAWA (The National Agency for Academic Exchange) í Póllandi.

Verkefnið er styrkt af NAWA (The National Agency for Academic Exchange) í Póllandi.