Skip to main content
4. júní 2025

Executive MBA-námið fær endurnýjaða alþjóðlega vottun frá AMBA

Executive MBA-námið fær endurnýjaða alþjóðlega vottun frá AMBA - á vefsíðu Háskóla Íslands

Executive MBA-námið við Háskóla Íslands hefur hlotið fimm ára endurnýjun á alþjóðlegri vottun frá AMBA (Association of MBAs). Sú staðreynd endurspeglar það öfluga og faglega starf sem unnið hefur verið að síðustu ár, bæði í kennslu, námskrárvinnu og þjónustu við nemendur.

AMBA eru óháð samtök með það markmið að efla gæði menntunar á sviði stjórnunar og reksturs. Vottun frá AMBA er ein virtasta viðurkenning sem hægt er að fá fyrir Executive MBA-nám, tæplega 300 skólar í heiminum hafa hlotið slíka viðurkenningu. 

Alþjóðlega vottunarferlið nær yfir margvíslega þætti námsins, þar á meðal: 

  • Tengsl námsins við háskólaumhverfi og atvinnulíf
  • Hæfni kennara og gæði kennslu
  • Stjórnun og þjónustu við nemendur
  • Tilgang námsins, markmið og hæfniviðmið
  • Námskrá og skipulag námsins
  • Bakgrunn nemenda

Aðstandendur Executive MBA-námsins við HÍ eru afar stoltir af þessari viðurkenningu. Hún staðfestir stöðu þess sem leiðandi náms fyrir stjórnendur sem vilja efla hæfni sína og auka áhrif í starfi og endurspeglar um leið hversu öflugur nemendahópurinn er.

Umsóknarfrestur um Executive MBA-nám við HÍ fyrir næsta skólaár rennur út þann 5. júní nk.
 

""

Executive MBA-námið hefur hlotið fimm ára endurnýjun á alþjóðlegri vottun frá AMBA (Association of MBAs).