Skip to main content

Upplýsingafundur fyrir umsækjendur um nám á Menntavísindasviði

 Upplýsingafundur fyrir umsækjendur um nám á Menntavísindasviði - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
11. júní 2026 16:00 til 17:30
Hvar 

Saga

1.hæð

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Menntavísindasvið býður umsækjendum um nám haustið 2026 á upplýsinga- og kynningarfund í Sögu.

Á fundinum verður þjónusta sviðsins, kennslufyrirkomulag, drög að stundatöflum og aðstaða til náms kynnt. Umsækjendur geta við þetta tækifæri rætt við kennara og starfsfólk um fyrirhugað nám og þá þjónustu sem nemendum stendur til boða.

Gestum gefst jafnframt kostur á að skoða nýjar og glæsilegar kennslustofur faggreina í Sögu.

Fundurinn er ætlaður öllum sem hafa sótt um nám á Menntavísindasviði og vilja kynna sér námið og námsumhverfið.

Við hlökkum til að taka á móti ykkur.