Skip to main content

Samskipti Íslands og Spánar: Vaxandi samstarf

Samskipti Íslands og Spánar: Vaxandi samstarf - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
23. júní 2026 12:30 til 13:30
Hvar 

Norræna húsið

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Opinn fundur utanríkisráðherra Íslands og Spánar í Norræna húsinu á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands og utanríkisráðuneytisins.

Fundurinn fer fram í Norræna húsinu, þriðjudaginn 23. júní, milli 12.30 og 13.30.

Íslenskt sendiráð var opnað í Madríd 1. desember sl. og hafa samskipti Íslands og Spánar verið að eflast í framhaldinu og eiga stjórnvöld í löndunum tveimur samleið í mörgum veigamiklum málum. Hafa spænsk stjórnvöld m.a. sett mannréttindamál á oddinn, ekki síst kynjajafnrétti, á meðan Ísland hefur um langt skeið trónað á toppi alþjóðlegra mælikvarða um kynjajafnrétti.

José Manuel Albares Bueno, utanríkisráðherra Spánar, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, ræða þau mál sem og Evrópumál í ljósi þjóðaratkvæðagreiðslunnar um framhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið. 

Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar, stýrir samtali ráðherranna tveggja.

Fundurinn fer fram á ensku og eru öll velkomin, en vinsamlegast skráið þátttöku hér.

Opinn fundur utanríkisráðherra Íslands og Spánar í Norræna húsinu á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands og utanríkisráðuneytisins. Fundurinn fer fram í Norræna húsinu, þriðjudaginn 23. júní, milli 12.30 og 13.30.

Samskipti Íslands og Spánar: Vaxandi samstarf