Skip to main content

Norræn ráðstefna um fæðingarorlof og sjálfbært samfélag

Norræn ráðstefna um fæðingarorlof og sjálfbært samfélag - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
4. apríl 2025 10:00 til 14:00
Hvar 

Þjóðminjasafnið

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Þann 4. apríl verður haldin ráðstefna þar sem fjallað verður um nýlegar umbætur á fæðingarorlofskerfum Norðurlandanna og hvernig þær stuðla að sjálfbærri þróun. Á ráðstefnunni mun leiðandi fræðafólk í rannsóknum á fæðingarorlofi frá Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð kynna niðurstöður samanburðargreiningar sem var styrkt af NIKK og munu birtast í skýrslu sem verður gefin út af Norrænu ráðherranefndinni í vor. Boðið er upp á hádegisverð.

Dagskrá:

Upphafsorð og kynning á dagskrá (10:00-10:10)

Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir, formaður Visku - stéttarfélags • Hugtökin félagsleg sjálfbærni og fæðingarorlof (10:10-10:25)

Ann-Zofie Duvander, prófessor í lýðfræði við Stokkhólmsháskóla • Fæðingarorlof á Norðurlöndunum (10:25-12:00): o Danmörk: Sein til að innleiða feðrakvóta Tine Rostgård, prófessor við viðskiptafræðideild Roskilde háskóla o Mótsagnir í fæðingarorlofsstefnu Finnlands: Er stefnt að kynjajafnrétti? Johanna Lammi-Taskula, rannsóknarstjóri hjá Finnska heilbrigðis- og velferðisstofnuninni o Fæðingarorlof sem hvetur til þátttöku beggja foreldra: Reynsla Íslands Ásdís Arnalds, lektor við Félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands o Feðrakvóti í aldarþriðjung: Reynsla Noregs Elin Kvande, prófessor við félags- og stjórnmálafræðideild NTNU, Þrándheimi o Bútasaumur í hálfa öld: Hverjir njóta góðs af fæðingarorlofi í Svíþjóð? Ann-Zofie Duvander, prófessor í lýðfræði við Stokkhólmsháskóla Hádegisverður (12:00-12:30) • Lærdómur: Samleitni eða aukin sundurleitni í fæðingarorlofskerfum Norðurlandanna? (12:30-12:45) Guðný Björk Eydal, prófessor við Félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands • Norrænt framlag til skilnings á mikilvægi fæðingarorlofs fyrir sjálfbær samfélög (12:45-13:00) Margaret O’Brian, prófessor við University College, Lundúnum • Pallborðsumræður með hagsmunaaðilum frá Norðurlöndunum (13:00-14:00) Skráning vegna þátttöku á staðnum fer fram hér: https://forms.gle/fv4fgBEuNgJLMd2T6

Hlekkur á Zoom-fund:

https://eu01web.zoom.us/j/67284934758

Þann 4. apríl verður haldin ráðstefna þar sem fjallað verður um nýlegar umbætur á fæðingarorlofskerfum Norðurlandanna og hvernig þær stuðla að sjálfbærri þróun.

Norræn ráðstefna um fæðingarorlof og sjálfbært samfélag