Málþing: Þróun, líffræðileg fjölbreytni og sjúkdómar
Aðalbygging
Hátíðarsalur
Upphafsmálstofa ráðstefnu um þróun, líffræðilega fjölbreytni og sjúkdóma verður haldin í Hátíðasal HÍ að morgni þess 17. ágúst nk.
Að ráðstefnunni standa Háskóli Íslands, Háskólinn í Calgary og Háskólinn á Hólum. Markmiðið er að tvinna saman rannsóknir á líffræðilegri fjölbreytni og mannasjúkdómum, til að greina hliðstæður í erfðamynstrum og næmni fyrir umhverfisþáttum.
Verkefnið One Child, every child sem háskólinn í Calgary fékk frá Kanadastjórn er aðalstyrktaraðilli verkefnisins, en auk þess styrkir Háskóli Íslands, Verkfræði- og náttúruvísinda svið skólans og Líffræðifélag íslands ráðstefnuna. Seinni dagar hennar verða á Hólum í Hjaltadal og á vettvangi þróunar við Mývatn.
9:00 Michael Hart: "Smudge" athöfn
9:15 Jón Atli Benediktsson: Opnun ráðstefnunar.
9:30 Skúli Skúlason: Kynning á leiksviði þróunar
9:45 Benedikt Hallgrímsson: Gen og erfðaáhrif - við sjáum einungis það breytilega
10:15 kaffihlé
10:30 Arnar Pálsson: Rannsóknir á fjölbreytileika bleikju
11:00 Patrick Sulem: Raðgreining fyrir sjúkdómsgreiningar - 10 ára reynsla
11:30 Michael Hart: Líffræðileg fjölbreytni og hinar upprunalegu þjóðir Kanada
12:00 Lokaorð
Fundurinn fer fram á ensku.
Lengri lýsing á fræðilegum bakgrunni og markmiði fundarins má sjá á ensku útgáfu viðburðarins.
Upphafsmálstofa ráðstefnu um þróun, líffræðilega fjölbreytni og sjúkdóma verður haldin í Hátíðasal HÍ að morgni þess 17. ágúst nk.