Skip to main content

Heilsan okkar: Að eldast á Íslandi

Heilsan okkar: Að eldast á Íslandi - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
23. maí 2025 11:30 til 13:00
Hvar 

Hringsal Landspítala

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Heilsan okkar - fundaröð: Að eldast á Íslandi

Heilsan okkar er ný fundaröð Háskóla Íslands og Landspítala sem hefur það að markmiði að varpa ljósi á áríðandi mál líðandi stundar er varða heilsu og heilbrigðisþjónustu. Þessir mánaðarlegu upplýsingafundir eru öllum opnir. Umsjón og ritstjórn með þessum fundi í fundaröðinni hefur Margrét Guðnadóttir, forstöðumaður miðstöðvar í öldrunarfræðum.

Í ljósi þess að þjóðin eldist hratt er mikilvægt að horfa til margbreytilegra aðstæðna þess fjölbreytta hóps sem eldra fólk er. Á málþinginu verður litið yfir stöðu og þróun aðstæðna hjá eldra fólki á Íslandi síðustu ár ásamt því að tengja saman lýðfræðilegar breytingar og heilbrigða öldrun við þær áskoranir sem fylgja breyttu heilsufarsástandi á efri árum.

Hlekkur á streymi: https://www.youtube.com/live/EWybS3pOon0

Dagskrá

  • Kolbeinn H. Stefánsson, dósent við Félagsráðgjafardeild – Lýðfræði og tekjur: Er fátækt hverfandi meðal eldra fólks?
  • Halldór S. Guðmundsson, dósent við Félagsráðgjafardeild – Velferð og vinna eldra fólks
  • Anna Björg Jónsdóttir, yfirlæknir öldrunarlækninga – Heilbrigð öldrun
  • Margrét Guðnadóttir, forstöðumaður Miðstöðvar í öldrunarfræðum og sérfræðingur í heimahjúkrun – Að eldast heima og aðlagast heilsumissi

Fundarstjóri er María Heimisdóttir, landlæknir

Um Heilsuna okkar
Funda- og viðburðaröðin Heilsan okkar er hugsuð sem samtal almennings, fagfólks og fræðafólks um heilsutengd málefni og verða viðburðir öllum opnir og þeim verður einnig streymt beint á netinu. Hlekkur á streymi kemur hér inn á viðburðinn og á viðburðasíðu á hi.is.

Heilsan okkar er ný fundaröð Háskóla Íslands og Landspítala sem hefur það að markmiði að varpa ljósi á áríðandi mál líðandi stundar er varða heilsu og heilbrigðisþjónustu. Þessir mánaðarlegu upplýsingafundir eru öllum opnir. Umsjón og ritstjórn með þessum fundi, sem ber yfirskriftina Að eldast á Íslandi, hefur Margrét Guðnadóttir, forstöðumaður miðstöðvar í öldrunarfræðum.

Heilsan okkar: Að eldast á Íslandi