Skip to main content

Geðveikir dagar

Geðveikir dagar  - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
2. febrúar 2026 11:30 til 5. febrúar 2026 22:00
Hvar 

Háskólatorg

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Geðveikir dagar eru árlegur viðburður með kynningum,  fyrirlestrum og öðrum viðburðum sem tengjast geðheilbrigði. Dagarnir eru samstarfsverkefni sálfræðinga Nemendaráðgjafar og Stúdentaráðs og standa yfir 2.-5.febrúar. Markmið þeirra er að efla umræðu um geðheilbrigðismál innan skólans og benda stúdentum á bjargir sem standa þeim til boða þegar kemur að geðheilsu.

Dagskrá

Mánudagur 2. febrúar

Kl. 11.30-13 á Háskólatorgi - Opnun Geiðveikra daga

Kynningar í hádeginu á Háskólatorgi. Þar geta nemendur spjallað við fulltrúa nemendaráðgjafar HÍ, Sálfræðiráðgjöf háskólanema, Einhuga – hópa fyrir háskólanemendur á einhverfurófi, Bergsins Headspace, Píeta og Geðhjálpar um hvaðeina sem viðkemur geðheilsu og stuðningi vegna andlegra áskorana.

Þriðjudagur 3. febrúar

Kl. 11.30-12.30 á Háskólatorgi - Pallborð um geðheilbrigðismál

Stúdentaráð stendur fyrir pallborði um geðheilbrigðismál á torginu með þátttöku Ölmu Möller heilbrigðisráðherra, Péturs Maack, formanns Sálfræðingafélag Íslands, Grétars Björnssonar, stjórnarmanns í Hugarafli, og fulltrúa stúdenta. Þar verður rætt um ýmsa þætti geðheilbrigðiskerfisins, þátttöku Sjúkratrygginga í kostnaði við sálfræðiþjónustu, greiningarferli, biðtíma og bráðaþjónustu.

Miðvikudagur 4. febrúar

Kl. 10-10.30 á Litla Torgi - Hugleiðsla

Hugleiðsla á Litla Torgi undir handleiðslu José M. Tirado, forsprakka Hugleiðsluhóps Háskóla Íslands.

Kl. 11.30 á Litla Torgi - Betri Svefn – betri líðan í skammdeginu

Erla Björnsdóttir, svefnsérfræðingur og stofnandi Betri svefns, fjallar um hvernig skammdegið og klukkan á Íslandi hafa áhrif á líkamsklukkuna, svefn og líðan og veitir hagnýt ráð til að bæta svefn og líða betur í myrkrinu.

Kl. 12 á Litla Torgi - Má bara ræða þetta? - Er umræða um sjálfsvíg skaðleg eða hættuleg?

Tómas Kristjánsson, lektor við Sálfræðideild, fjallar um hvernig  við getum notað vísindi til þess að leiða umræðuna á þann stað að hún geti stutt og hjálpað þeim sem glíma við sjálfsvígshugsanir.

Kl. 12.30 á Litla Torgi - ADHD hjá stúlkum og konum: hormónasveiflur og ADHD einkenni

Unnur Jakobsdóttir Smári, sálfræðingur og doktorsnemi við HÍ, fjallar um hvernig hormónasveiflur sem tengjast tíðahring kvenna, meðgöngu og breytingaskeiðinu geta haft töluverð áhrif á ADHD einkenni og meðferð við ADHD. Farið verður yfir stöðu núverandi þekkingar í þessum efnum.

Fimmtudagur 5. febrúar

Kl. 11.30 á Litla Torgi - Nærumst og njótum

Hvernig nærum við okkur á heilbrigðan hátt? Í þessu erindi fer Ingunn Erla Invarsdóttir, klínískur næringarfræðingur, yfir hvernig hægt er að næra sig og efla heilsu á heilbrigðan hátt. Þá verður einnig farið yfir hvernig óheilbrigt samband við mat getur haft áhrif á ákvarðanatöku í kringum næringu og leiðir til að rjúfa það.

Kl. 12 á Litla Torgi - Hvernig hreyfi ég mig í takt við brenglaðar væntingar?

Einar Hansberg Árnason, íþróttafræðingur og þjálfari, og fjallar um mikilvægi hreyfingar í tengslum við geðheilbrigði.

Kl. 12.30 á Litla Torgi - Að byrja saman 101

Í þessu erindi fjallar Áslaug Kristjánsdóttir kynfræðingur um leiðir til að hefja samband, „bleika skýið“, hvað gerist í líkamanum og tilfinningar og hugsanir sem takast á. Þá verður rætt um frammistöðukvíða, höfnun og hjálpleg ráð.

Geðveikir dagar eru árlegur viðburður með kynningum,  fyrirlestrum og öðrum viðburðum sem tengjast geðheilbrigði. Dagarnir eru samstarfsverkefni sálfræðinga Nemendaráðgjafar og Stúdentaráðs og standa yfir 2.-5.febrúar. 

Geðveikir dagar