Doktorsvörn: Vittorio Orlando

Aðalbygging
Hátíðarsal
Vittorio Orlando ver doktorsritgerð sína í stjórnmálafræði við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands.
Ritgerðin ber heitið: „Brexit: tilviksrannsókn á stjórnmálum eftirsannleikans og gliðnun evrópusamstarfsins“.
Andmælendur eru dr. Nathalie Brack, dósent í stjórnmálafræði við Université libre de Bruxelles, og dr. Simon Usherwood, prófessor í stjórnmálum og alþjóðafræðum við The Open University. Aðalleiðbeinandi er dr. Maximilian Conrad, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands.
Vittorio Orlando fæddist árið 1993 í Agrigento á Ítalíu. Árið 2016 lauk hann meistaraprófi í lögfræði frá LUMSA-háskólanum í Palermo á Ítalíu. Lokaritgerð hans fjallaði um lagaleg og efnahagsleg álitaefni tengd þjóðflutningum á 4. öld eftir Krist og var unnin undir leiðsögn prófessors Maurilio Felici.
Við Háskóla Íslands lauk hann framhaldsdiplómu í smáríkjafræðum árið 2018 og meistaragráðu í alþjóðasamskiptum árið 2019. Meistararitgerð hans fjallaði um síðara Persaflóastríðið og var unnin undir leiðsögn Maximilians Conrad. Vittorio hefur kennt við Háskóla Íslands á sviði stjórnmálakenninga og greiningar á utanríkisstefnu.
