Skip to main content

Doktorsvörn í Menntavísindum: Bryndís Gunnarsdóttir

Doktorsvörn í Menntavísindum: Bryndís Gunnarsdóttir - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
27. nóvember 2025 13:00 til 16:00
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðasalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Bryndís Gunnarsdóttir ver doktorsritgerð sína í menntavísindum við Deild kennslu- og menntunarfræði við Háskóla Íslands. Vörnin fer fram fimmtudaginn 27.nóvember kl. 13:00 í Hátíðasal  aðalbyggingar Háskóla Íslands og verður einnig í streymi.

Hlekkur á streymi

Heiti ritgerðar: Félagslyndi ungra leikskólabarna: Rannsókn á óyrtum félagslegum samskiptum í jafningjahópnum.

Andmælendur: Dr Annukka Pursi, háskólalektor við the University of Helsinki, Finnland and dr. Anne Greve, prófessor við the Oslo Metropolitan University, Noregi

Aðalleiðbeinandi:  Dr. Amanda Bateman prófessor við Birmingham City University, England
Meðleiðbeinandi er Dr. Sally Peters, deildarforseti við University of Waikato, Nýja Sjálandi. Sérfræðingur í doktorsnefnd og umsjónarkennari er Dr. Hrönn Pálmadóttir fyrrverandi dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands

Stjórnandi athafnar: Dr. Karen Rut Gísladóttir, prófessor og deildarforseti við Deild kennslu- og menntunarfræði stjórnar athöfninni.

Verið öll velkomin!

Um verkefnið:

Doktorsrannsókn þessi fjallar um félagslyndi (e. sociality) ungra leikskólabarna með áherslu á þátttöku þeirra og færni í samskiptum við jafningja. Sérstaklega var skoðað hvernig þau beita óyrtum aðferðum til að taka virkan þátt í jafningjahóp, móta hann í samvinnu við önnur börn og skapa tilfinningu fyrir hinu „sameiginlega við“ (e. mutual we). Rannsóknin fór fram á ungbarnadeild í leikskóla á Íslandi og byggir á félagsháttafræði (e. ethnomethodology) og fjölháttasamtalsgreiningu (e. multimodal conversation analysis). Hún sýnir fram á að ung börn taka virkan þátt í félagslegum samskiptum og sýna þannig fram á félagslyndi sitt.

Niðurstöður rannsóknarinnar hafa verið birtar í þremur ritrýndum fræðigreinum. Sú fyrsta lýsir óyrtum aðferðum barna til að hefja samskipti, einkum með augnasambandi og snertingu. Önnur greinin fjallar um húmor og virknikosti útileiksvæðisins til að efla tengsl og tilfinningu fyrir að tilheyra í barnahópnum. Þriðja greinin sýnir hvernig börn nota áhorf og eftirhermu til að taka þátt í leik og samskiptum. Niðurstöðurnar varpa ljósi á hvernig börn móta jafningjamenningu og félagsleg tengsl frá unga aldri.

Gögnum var safnað í níu mánuði með þátttökuathugunum, myndbandsupptökum og vettvangsnótum. Afritun þessara óyrtu samskipta samkvæmt aðferð fjölháttasamtalsgreiningar leiddi í ljós blæbrigðaríkar leiðir barna til félagslegrar þátttöku. Aðferðin reyndist gagnleg til að skoða samskipti ungra barna og gefur mikilvæga innsýn í félagslega reynslu þeirra.

Niðurstöðurnar hafa bæði fræðilegt og hagnýtt gildi. Þær leggja til nýja sýn á félagslyndi yngstu barnanna og sýna fram á mikilvægi þess að kennarar styðji meðvitað við samskipti þeirra. Með auknum skilningi á félagslegri hæfni barna geta leikskólar skapað svigrúm og tækifæri til að efla félagslega virkni og möguleika ungra barna á að skapa félagslega samheldni innan jafningjahópsins.

Um doktorsefni:

Bryndís Gunnarsdóttir (f.1975) lauk B.Ed-prófi í leikskólakennarafræðum frá Háskóla Íslands 2009 auk BA-prófi í ensku með sagnfræði sem aukagrein. Hún lauk meistaraprófi í alþjóðlegri  leikskólafræði frá þremur samstarfsháskólum 2012, en það voru Ósló Metropolitan háskólinn í Noregi, Technological University Dublin á Írlandi og Háskólinn á Möltu. Námið var skipulagt undir Erasmus Mundus  prógrammi Evrópusambandsins og styrkt af Evrópuráðinu. Árið 2014 hlaut Bryndís doktorsnámsstyrk Wilf Malcolm rannsóknarstofunnar við Waikato háskóla á Nýja Sjálandi og hóf doktorsnám þar sama ár. Hún flutti sig svo til Háskóla Íslands árið 2017. Bryndís starfaði sem leikskólakennari með deildarstjórn í leikskólanum Sólborg á Ísafirði 2009 til 2010 og frá 2015 til 2021 og í leikskólunum Barneslottet og Bykuben í Ósló, Noregi frá 2012-2014. Frá 2021 hefur Bryndís starfað sem aðjúnkt við Menntavísindasvið Háskóla Íslands þar sem hún kennir leikskólakennarafræði. Auk þess er Bryndís í stjórn RannUng, rannsóknarstofu í menntunarfræðum ungra barna. Bryndís er Ísfirðingur, foreldrar hennar eru Gunnar Veturliðason og Valdís Friðriksdóttir og er hún ein sex systkina.

Bryndís Gunnarsdóttir (f.1975) lauk B.Ed-prófi í leikskólakennarafræðum frá Háskóla Íslands 2009 auk BA-prófi í ensku með sagnfræði sem aukagrein. Hún lauk meistaraprófi í alþjóðlegri  leikskólafræði frá þremur samstarfsháskólum 2012, en það voru Ósló Metropolitan háskólinn í Noregi, Technological University Dublin á Írlandi og Háskólinn á Möltu. Námið var skipulagt undir Erasmus Mundus  prógrammi Evrópusambandsins og styrkt af Evrópuráðinu. Árið 2014 hlaut Bryndís doktorsnámsstyrk Wilf Malcolm rannsóknarstofunnar við Waikato háskóla á Nýja Sjálandi og hóf doktorsnám þar sama ár. Hún flutti sig svo til Háskóla Íslands árið 2017.

Doktorsvörn í Menntavísindum: Bryndís Gunnarsdóttir