Doktorsvörn í landfræði - Birna Lárusdóttir

Aðalbygging
Hátíðarsalur
Doktorsefni: Birna Lárusdóttir
Heiti ritgerðar: Landslag í mótun: örnefni og ferli nafngifta í Surtsey (A landscape in the making: Place names and naming processes in Surtsey)
Andmælendur:
Dr. Edward H. Huijbens, prófessor við Wageningen University í Hollandi
Dr. Kendra Jean Willson, aðjúnkt við Jagiellonian University í Kraká, Póllandi
Leiðbeinandi: Dr. Edda R.H. Waage, dósent við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands
Einnig í doktorsnefnd:
Dr. Björn Þorsteinsson, prófessor við Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði, Háskóla Íslands
Dr. Emily Lethbridge, rannsóknardósent við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Doktorsvörn stýrir: Dr. Snæbjörn Pálsson, prófessor og deildarforseti Líf- og umhverfisvísindadeildar Háskóla Íslands
Ágrip
Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á örnefni sem hreyfanlegt og síbreytilegt afl og að draga upp mynd af því hvernig þessi hreyfanleiki hefur áhrif á landslag og sýn okkar á það. Nafngiftaferlið er í forgrunni, þ.e. að skoða hvernig örnefni og söfn örnefna verða til í tengslum við ýmsa aðra þætti. Til að draga fram inntak örnefnahugtaksins og hvernig það hefur þróast í fræðilegu ljósi eru sögu örnefnarannsókna á Íslandi gerð skil. Grafist er fyrir um viðhorf til örnefna, nafngiftaferla og örnefnasöfnunar og þar með könnuð tilurð gagna um örnefni eins og við þekkjum þau. Þá eru þekkt nafngiftaferli úr nútímanum notuð til að auka skilning á því hvernig örnefni verða til, hvernig þau endurspegla og hafa áhrif á heimsmynd okkar og varpa ljósi á menningarlegt vald yfir landfræðilegu rými og stöðum. Aðalrannsóknarefnið er örnefni í Surtsey, en hún varð til í eldsumbrotum haustið 1963. Þar gefst fágætt tækifæri til að rannsaka örnefnamyndun í nýju landi frá upphafi, en byggt er á ýmiss konar ritheimildum, vettvangskönnun og viðtölum. Aðferðafræðilegur grunnur verkefnisins er þverfræðilegur og stuðst við nálganir úr menningarlandfræði, félagslegri örnefnafræði og heimspeki. Þannig er horft á félagslegt umhverfi örnefna og m.a. hvernig þau eru ekki alltaf hlutlausir merkimiðar heldur gildishlaðin og jafnvel hápólitísk.
Um doktorsefnið
Birna Lárusdóttir er með BA-próf í íslensku og MA-gráðu í fornleifafræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur lengi starfað við fornleifarannsóknir hjá Fornleifastofnun Íslands en meðan á doktorsnáminu stóð sat hún í rannsóknarstöðu við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.
Birna Lárusdóttir
