Skip to main content

Doktorsvörn í læknavísindum - Inga Lára Ingvarsdóttir

Doktorsvörn í læknavísindum - Inga Lára Ingvarsdóttir - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
27. júní 2025 9:00 til 12:00
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðasalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Föstudaginn 27. júní 2025 ver Inga Lára Ingvarsdóttir doktorsritgerð sína í læknavísindum við Læknadeild Háskóla Íslands. Ritgerðin ber heitið: Hjarta- og lungnadælur:  Ábendingar og snemm- og síðbúinn árangur. Extracorporeal membrane oxygenation:  Indications and early and late outcome.

Andmælendur eru dr. Jan van der Linden, prófessor við Karolinska sjúkrahúsið í Svíþjóð, og dr. Julie Vishram-Nielsen, prófessor við Zealand University Hospital í Danmörku.

Umsjónarkennari og leiðbeinandi var Tómas Guðbjartsson, prófessor. Auk hans sátu í doktorsnefnd Göran Dellgren, prófessor sem einnig var meðleiðbeinandi Ingu Láru í Gautaborg, Martin Ingi Sigurðsson, prófessor, Sigurður Ragnarsson, hjarta-og lungnaskurðlæknir og Sólveig Helgadóttir, svæfinga-og gjörgæslulæknir.

Þórarinn Guðjónsson, prófessor og  deildarforseti Læknadeildar, stjórnar athöfninni sem fer fram í Hátíðasal Háskóla Íslands og hefst kl. 9.

Ágrip

Hjarta- og/eða lungnadæla (ECMO) er lífsbjargandi meðferð sem hægt er að beita í alvarlegri hjarta- og/eða öndunarbilun og felur í sér í stórum dráttum að blóðið er súrefnisvætt með gervilunga utan líkamans. Markmið rannsókna I og II var að kanna ábendingar og árangur dælumeðferðar hér á landi, þar með talið langtímaárangur. Að auki var markmiðið að kanna eins árs árangur meðferðar með hjartadælu vegna hjartalosts á stærra háskólasjúkrahúsi í Svíþjóð, þar sem einnig voru kannaðar orsakir og alvarleiki hjartalostsins. Var þetta gert með afturskyggnum rannsóknum á íslenskum dælutilfellum árin 1991-2022, og síðar eftirfylgd á lífsgæðum þeirra sjúklinga sem voru á lífi árin 2022-2023. Aðrar tvær afturskyggnar rannsóknir (III og IV) voru gerðar á hjartadælutilfellum á Sahlgrenska sjúkrahúsinu í Gautaborg árin 2004-2019. Niðurstöður rannsókna I og II benda til þess að hægt sé að veita meðferð með hjarta- og lungnadælu með ásættanlegum árangri á lítilli og einangraðri einingu, eins og á Landspítala. Þó eru tækifæri til bætingar, m.a. hvað varðar val á sjúklingum í hjartadælumeðferð í hjartastoppi. Þá sýndu rannsóknir III og IV að eins árs lifun sjúklinga sem fengu hjartadælu vegna hjartalosts á Sahlgrenska sjúkrahúsinu var ásættanleg og var árangur bestur fyrir sjúklinga með hjartabilun án blóðþurrðarsjúkdóms. Verri horfur þeirra sjúklinga sem fá hjartadælu í hjartastoppi gefa til kynna mikilvægi réttrar tímasetningar meðferðarinnar, sem og rétts sjúklingavals.

Abstract

Extracorporeal membrane oxygenation (ECMO) is a form of life support used in severe and refractory respiratory and/or cardiac failure. It includes oxygenating the blood with an artificial lung outside of the body. The aim of studies I and II was to examine the indications and outcome of ECMO in Iceland, including long-term outcome. Additionally, the aim in studies III and IV was to describe the 1-year outcome of venoarterial ECMO for cardiogenic shock in a larger Swedish center, with a focus on the etiology and the severity of the shock. This was achieved with retrospective studies on all adult venoarteral and venovenous ECMO patients treated in Iceland between 1991 and 2022, with a follow-up questionnaire for those that were alive in the years 2022-2023.  Studies III and IV were also retrospective single-center studies, on all patients that received VA ECMO for cardiogenic shock at Sahlgrenska in the years 2004-2019. The results of studies I and II indicate that ECMO can be provided with an acceptable outcome in a low-volume and geographically isolated center, such as Landspitali. However, opportunities for improvement could be identified, such as stricter indications for ECMO in cardiac arrest. Additionally, 1-year survival was acceptable for patients receiving VA ECMO for cardiogenic shock at Sahlgrenska, with the most favorable outcome for patients with non-ischemic cardiomyopathies. Poorer outcome for patients receiving ECMO for cardiac arrest imply the importance of timing of the ECMO treatment of all etiologies, as well as patient selection.

Um doktorsefnið

Inga Lára Ingvarsdóttir er fædd 1983 í Reykjavík. Hún lauk kandídatsprófi í læknisfræði frá Háskóla Íslands árið 2010 og fékk lækningaleyfi að loknu kandídatsári 2011. Árið 2015 hélt hún til frekara náms í Gautaborg og hlaut sérfræðiréttindi í svæfinga- og gjörgæslulækningum árið 2020. Frá árinu 2022 hefur Inga Lára starfað sem svæfinga- og gjörgæslulæknir á Landspítala. Doktorsverkefnið var unnið samhliða klínískri vinnu við Landspítala og Sahlgrenska háskólasjúkrahúsið í Gautaborg. Foreldrar Ingu Láru eru Ingibjörg Bjartmarz og Ingvar Alfreð Sigfússon. Inga Lára er í sambúð með  Jóni Trausta Sigurðssyni útgefanda og þau eiga þrjú börn, Flóka Forna 11 ára, Ingvar Braga 8 ára og Laufeyju Eddu 6 ára.

Inga Lára Ingvarsdóttir ver doktorsritgerð sína í læknavísindum við Læknadeild Háskóla Íslands föstudaginn 27. júní 2025.

Doktorsvörn í læknavísindum - Inga Lára Ingvarsdóttir