Skip to main content

Doktorsvörn í íslenskum bókmenntum: Teresa Dröfn Freysdóttir Njarðvík

Doktorsvörn í íslenskum bókmenntum: Teresa Dröfn Freysdóttir Njarðvík - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
13. nóvember 2025 13:00 til 15:00
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðasalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Fimmtudaginn 13. nóvember 2025 fer fram doktorsvörn við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Þá ver Teresa Dröfn Freysdóttir Njarðvík doktorsritgerð sína í íslenskum bókmenntum, Ölvis rímur sterka og Bragða-Ölvis saga: Handrit, miðlun og þróun. Viðburðurinn fer fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands og hefst kl. 13:00.

Andmælendur við vörnina verða Jon Gunnar Jørgensen, prófessor við Háskólann í Osló, og Þórunn Sigurðardóttir, rannsóknarprófessor emeritus við Stofnun Árna Magnússonar. Doktorsritgerðin var unnin undir leiðsögn Aðalheiðar Guðmundsdóttur, prófessors í íslenskum bókmenntum fyrri alda við Háskóla Íslands. Einnig voru í doktorsnefnd Haukur Þorgeirsson, rannsóknarprófessor við Stofnun Árna Magnússonar og M. J. Driscoll, prófessor emeritus við Stofnun Árna Magnússonar í Kaupmannahöfn.

Gauti Kristmannsson, forseti Íslensku- og menningardeildar, stjórnar athöfninni.

Um rannsóknina

Rannsókn þessi fjallar um Ölvis rímur sterka og Bragða-Ölvis sögu og miðast við að endurmeta aldur rímnanna sem og prósagerðarinnar, auk þess sem leitast er við að varpa ljósi á þróun íslenskra bókmennta með sérstakri áherslu á Ölvis rímur sterka og Bragða-Ölvis sögu. Í ritgerðinni er leitast við að útskýra íslenska bókmenntahefð og sagnaþróun og skilja hvernig frásagnir „flökkuðu“ á milli bókmenntategunda og voru aðlagaðar í breytilegu formi í takt við samfélagið. Leitast er við að aldursgreina rímurnar og prósagerðina, greina samband þeirra innbyrðis (breytingar á efnistökum, lesbrigði og tilfærslu milli miðlunarforma) en einnig samband þeirra út á við (þ.e. tengsl við annað efni og hvernig efnið um Ölvi passar inn í bókmenntahefð og þróun á Íslandi).

Um doktorsefnið

Teresa Dröfn Freysdóttir Njarðvík lauk B.A. prófi í almennri bókmenntafræði með þjóðfræði sem aukagrein við Háskóla Íslands og M.A. prófi í miðaldafræði frá sama skóla. 

Teresa Dröfn Freysdóttir Njarðvík.

Doktorsvörn í íslenskum bókmenntum: Teresa Dröfn Freysdóttir Njarðvík